Gátt - 2014, Qupperneq 22
22
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
í Grunnmenntaskólanum frá Mími sem kenndur er í FB en
hópurinn er að stærstum hluta nemendur sem hafa horfið
frá námi í FB. Samstarf Mímis og FB getur orðið fyrirmynd að
sams konar samstarfi framhaldsskóla og framhaldsfræðslu-
stofnana.
Boðið er upp á stuðningstíma einu sinni í viku í stærð-
fræði, íslensku og ensku 102 í Fjölbrautarskólanum í Breið-
holti. Mikil eftirspurn var eftir aukatímum í stærðfræði sem
var fjölgað í kjölfarið. Stoðtímar eru aðgengilegri bæði fyrir
nemendur í FB og námsbrautum Mímis og Námsflokkanna.
Námsráðgjafi Menntun núna hefur haldið námskeið í náms-
tækni fyrir kvöldskólanemendur, nemendur á starfsbraut og
í Grunnmenntaskólanum. Námsráðgjafi tekur viðtöl við alla
nemendur í lengri námsbrautum og hittir þá reglulega til að
fara yfir námsframvindu og líðan.
Á næsta ári er fyrirhugað að fara af stað með a.m.k.
eitt námskeið af Námskrafti, 2 Grunnmenntaskóla, 2 Land-
nemaskóla og mögulega Menntastoðir. Þá er horft til þess
að bjóða upp á eina samþætta önn fyrir leik- og skólaliða
og stuðningsfulltrúa í kjölfar raunfærnimats í stofnunum
borgarinnar í hverfinu.
Sérsniðin námskeið og samstarf
Verkefnastjóri Menntunar núna kom að hugmyndavinnu og
stefnumótun um „Fjölskyldumiðstöð í Gerðubergi“ sem lögð
var fyrir Borgarráð á haustdögum 2014. Í tengslum við þessa
vinnu komu meðal annars upp hugmyndir um HAM-nám-
skeið í samstarfi við Þjónustumiðstöð Breiðholts og FB sem
og samstarf við Geðheilsustöð Breiðholts um námskeið fyrir
notendur.
Geðheilsustöð Breiðholts hafði þegar haldið nám-
skeiðið Gæfuspor fyrir þolendur ofbeldis sem glímdu meðal
annars við þunglyndi og kvíða. Þegar höfðu tveir hópar farið
í gegnum námskeiðið við Geðheilsustöðina með góðum
árangri. Í mati á námskeiðinu kom fram vilji þátttakenda
til að halda áfram að læra en námskeiðið hefur verið leið
margra þátttakenda aftur út í samfélagið. Byggt á reynslu
Starfsendurhæfingar Norðurlands á Akureyri, í samráði
við starfsmenn Geðheilsustöðvar og þátttakendur í Gæfu-
sporum, var þróað 10 vikna námskeið, kennt þrisvar í viku
eftir hádegi í Árskógum. Þar var blandað var saman Núvitund
og námskeiðinu „Breytingar, tækifæri og markmið“ auk þess
sem þátttakendur unnu með námsráðgjafa að því að greina
áhugasvið sín samhliða því að vinna náms- og starfsferils-
skrár. Árangur af námskeiðinu fór fram úr björtustu vonum
og flestir þátttakendur eru nú á leiðinni í nám eða aftur út á
vinnumarkaðinn, margir eftir að hafa verið óvirkir í ár eða
áratugi. Áframhaldandi samstarf verður við Geðheilsustöð-
ina vegna næsta Gæfuspora námskeiðs sem og fræðslu og
starfsþjálfunar notenda í Fab Lab.
Í samstarfi við Þjónustumiðstöð Breiðholts, Fjölbrautar-
skólans og Heilsugæslunnar í Breiðholti verður haldið nám-
skeið í hugrænni atferlismeðferð (HAM) fyrir þá sem horfið
hafa burt úr námi eða starfi sökum kvíða og þunglyndis.
Hugmyndin byggist á samstarfi Þjónustumiðstöðvar við FB
og grunnskóla í hverfinu þar sem framkvæmd var skimun á
einkennum þunglyndis og kvíða hjá nemendum í 9. og 10.
bekk þar sem boðið var upp á HAM-námskeið fyrir hópinn
í viðtali við nemendur og foreldra þeirra. Meginmarkmið
skimana og HAM-námskeiða var að fyrirbyggja brotthvarf og
stuðla að frekara námi.
Í samstarfi við Þjónustumiðstöð Breiðholts og FB verður
unnið að því að mæta þörfum ólíkra hópa í hverfinu fyrir
fræðslu, sjálfsstyrkingu og starfsþjálfun með það að mark-
miði að fólk fari aftur í nám eða út á vinnumarkaðinn.
Fræðsla og fyrirlestrar
Þátttaka í opnum námskeiðum á borð við fimmtudags-
fræðslu, núvitund, skyndihjálp, opnu tölvuveri, Fab Lab-
smiðjum og kynningum hefur verið góð. Fimmtudagsfræðsla
er heiti á stuttum námskeiðum og erindum sem haldin eru
á tveggja vikna fresti í samstarfi við Menningarmiðstöðina
Gerðuberg og Þjónustumiðstöð Breiðholts og auglýst sem
hluti af dagskrá hennar. Að jafnaði mæta 10–12 manns á
hvern viðburð.
Á föstudögum er opið tölvuver fyrir byrjendur í sam-
starfi við Félagsstarfið í Gerðubergi en 6–10 manns mæta að
jafnaði í fræðsluna sem er einstaklingsmiðuð. Námskeiðið „Í
GRASRÓTINNI – um stofnun og rekstur frjálsra félagasam-
taka“ fór af stað í byrjun nóvember og leiðtoganámskeið
fyrir konur fer af stað í desember. Markmiðið með báðum
þessum námskeiðum er að styðja við starfsemi félaga og
sjálfboðaliðastarf bæði innflytjenda og annarra íbúa.
Í undirbúningi er vikuleg íslenskukennslu og talþjálfun
með áherslu á leiklist, tónlist og almenna skemmtun sem
hefst í kjölfar útskrifta íslenskunámskeiða í nóvember. Haldin
voru þrjú skyndihjálparnámskeið fyrir almenning vorið 2014
og boðið verður upp á tvö slík í nóvember auk þess sem átta
vikna námskeið í núvitund hófst í lok október.