Gátt - 2014, Page 23
23
F r Æ Ð s L U M i Ð s t Ö Ð A t V i N N U L Í F s i N s
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
Raunfærnimat og mat á námi
Menntun núna hefur staðið fyrir kynningarfundum, þýtt upp-
lýsingabækling um raunfærnimat á 10 tungumál og unnið
umfjöllun og greinar um raunfærnimat fyrir Breiðholtsblaðið
auk þess að kynna tilboð IÐUNNAR fræðsluseturs í námsvísi
Menntunar núna. Nokkrir hafa hafa nokkrir nýtt sér mats-
nefnd FB til að fá nám og reynslu sína metna til eininga á
framhaldsskólastigi.
Raunfærnimat fyrir skóla- og leikskólaliða var kynnt
á fundum með starfsfólki skóla og leikskóla í hverfinu og
hafinn er undirbúningur fyrir raunfærnimat í stofnunum
borgarinnar í hverfinu sem og kynning og undirbúningur fyrir
raunfærnimat í almennum bóklegum greinum. Fundað hefur
verið með lykilstjórnendum hjá Reykjavíkurborg um aðkomu
að verkefninu og mögulegan ávinning starfsmanna af raun-
færnimati og frekara námi, bæði hvað varðar nám meðfram
starfi og umbun að loknu námi.
Farin er af stað vinna í að samþætta upplýsingamiðlun
varðandi mat á námi sem aflað er frá öðru landi, bæði innan
og utan EES, þar sem fram kemur bæði hverjir meta og hvað
er metið í þeim tilvikum sem þær upplýsingar liggja frammi.
Samandregnar upplýsingar verða þýddar á 10 tungumál utan
íslensku auk þess sem boðið verður upp á ráðgjöf og stuðn-
ing til innflytjenda og annarra sem leita eftir slíkri viðurkenn-
ingu. Markmiðið er að ná til a.m.k. 600 einstaklinga með
upplýsingar og ráðgjöf um þau ferli sem þar liggja að baki
en erfitt getur reynst að halda utan um árangur af þeirri
þjónustu og miðlun.
Fræðsla í Fab Lab í Fellagörðum
Á fundi verkefnisstjórnar í september var samþykkt tillaga
um að verkefnastjóri Menntunar núna ynni að hluta í Fab
Lab Reykjavík í Fellagörðum undir stjórn Fjölbrautarskólans
í Breiðholti. Hlutverk verkefnisstjóra Menntunar núna er að
tengja Fab Lab við nærsamfélagið, stuðla að samstarfi við
skóla og frístundamiðstöðvar í hverfinu. Fab Lab er stafræn
smiðja þar sem nemendur, frumkvöðlar og fólk úr samfé-
laginu kemur til að þróa hugmyndir sínar með því að nota
frjálsan og opinn hugbúnað til að vinna að stafrænni hönnun
og vöruþróun í þeim vélum og tækjum sem eru í smiðjunni,
s.s. þrívíddarprentara, vínilskera, laserskera og fræsara.
Þegar hafa verið haldnar hafa verið tvær opnar smiðjur í
Fab Lab og fyrirhugaðar eru tvær til viðbótar fram að ára-
mótum. Auk þess hefur verið skipulagður fjöldi fræðslufunda
fyrir starfsmenn skóla og frístundamiðstöðva og framhalds-
fræðslunnar.
Lykillinn að virku starfi Fab Lab er einmitt þjálfun kenn-
ara og leiðbeinenda sem geta í kjölfarið nýtt sér möguleika
smiðjunnar. Námsflokkar Reykjavíkur munu kenna námskeið
í smiðjunni sem hluta af námsbrautinni Starfskrafti auk þess
sem tveir listgreinakennarar hjá Námsflokkunum munu taka
þátt í Fab Academy sem fer af stað í janúar. Miðberg frí-
stundamiðstöð og Menntun núna munu standa fyrir nám-
Nemendur í íslensku 1.