Gátt - 2014, Page 28
28
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
Niðurstöður spurningalistanna voru settar fram í töflum og
myndum ásamt stuttum túlkunum í skýrslu RHA og voru höf-
undar hennar Hjördís Sigursteinsdóttir og Hjalti Jóhannes-
son. Hér verður greint frá helstu niðurstöðum könnunarinnar
meðal almennings. Þar sem fá svör bárust við könnun meðal
atvinnurekenda var greinanleiki þeirra svara mun minni og
verður aðeins greint frá helstu niðurstöðum hennar. Skýrsla
RHA er í heild sinni aðgengileg á vef stofnunarinnar (www.
rha.is).
Konur voru í meirihluta svarenda eða um tveir þriðju
svarenda. Aldursbil þátttakenda spannaði alls 67 ár; sá elsti
var 85 ára og sá yngsti 18 ára. Meirihluti þátttakenda var
búsettur á Akureyri eða tæp 74% sem er sama hlutfall og
íbúar Akureyrar eru sem hlutfall af íbúum Eyjafjarðarsvæðis-
ins.
Um 35% þátttakenda höfðu lokið grunnskólaprófi eða
landsprófi, um 23% höfðu lokið styttra starfsnámi eða iðn-
námi, rúm 12% höfðu stúdentspróf og tæp 29% höfðu lokið
háskólanámi eins og má sjá á mynd 1.
Þrír af hverjum fjórum þátttakendum voru í vinnu og rúm
10% í atvinnuleit. Langflestir störfuðu í opinberri þjónustu
(31%), 15% í fræðslustarfi og 13% við verslun og þjónustu.
Þegar spurt var hversu miklum tíma þátttakendur höfðu
varið í sí- og endurmenntun á síðastliðnum tveimur árum
kom fram að algengast var að þátttakendur höfðu varið 20
klst. eða meira í sí- og endurmenntun á þessum tíma eða um
40% svarenda eins og sjá má á mynd 2.
Hins vegar er ekki síður athyglisvert að um þriðjungur
þátttakenda hafði ekki varið neinum tíma í sí- og endur-
menntun á síðastliðnum tveimur árum. Þegar spurt var um
ástæður þess nefndu þessir þátttakendur helst að þeir hefðu
ekki efni á að greiða fyrir slík námskeið (29%), að það væri
ekkert í boði á svæðinu sem þeir hafi áhuga á (28%) og að
ekki sé tími til að sækja slík námskeið (25%). Þannig styðja
þessar niðurstöður að verulegu leyti við þá orðræðu sem
fjallað var um í inngangi greinarinnar.
Þegar þátttakendur voru beðnir um að meta fjölbreyti-
leika námsframboðs á Eyjafjarðarsvæðinu kom þó almennt
fram að þátttakendur meta hann mjög góðan. Það er reyndar
í mótsögn við það að 28% sögðu að þeir hefðu ekki sinnt
0% 10% 20%
Já Nei Á ekki við
30% 40% 50% 60% 70% 80% 90% 100%
Allir
Karl
Kona
30 ára og yngri
31-45 ára
46-60 ára
61 árs og eldri
Grunnmenntun
Starfsnám eða iðnmenntun
Matvælaframl., landbún. og sjávarútv.
Iðnaður
Verslun og þjónusta
Opinber þjónusta
Fræðslu-, menningar- og íþróttastarfsemi
Stúdentspróf
Háskólapróf
Mynd 3 – „ef í boði væri nám/námskeið eða önnur þjálfun hér á eyjafjarðarsvæðinu sem gæfi
möguleika á að skipta um starf eða að komast aftur á vinnumarkaðinn, hefðir þú áhuga á að
nýta þér það?“ Greint eftir kyni, aldri, menntun og atvinnugrein.