Gátt - 2014, Qupperneq 33
33
F r Æ Ð s L U M i Ð s t Ö Ð A t V i N N U L Í F s i N s
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
K y N j A H L U T F A L L o G M e N N T U N A R -
S T I G
Fleiri karlar en konur fengu könnunina senda en svarhlut-
fallið var jafnt milli karla og kvenna. Meira en helmingur
þátttakenda var á aldrinum 28 til 40 ára en fólk eldra en 61
árs var aðeins 3,1%. Hlutfall þeirra sem hafa lokið námi á
framhaldsskólastigi, þ.e. tækninámi, iðnnámi eða eru með
stúdentspróf, er 64,8. Alls 30,3 % þátttakenda hafa lokið
námi á háskólastigi. Hærra hlutfall kvenna en karla hefur
lokið háskólanámi (57,7% kvenna á móti 42,3% karla) og
hærra hlutfall karla en kvenna höfðu lokið iðn- eða tækni-
námi (57% karla á móti 43% kvenna). Meirihluti þátttak-
enda í hópi 40 ára eða eldri hafa iðn- eða tæknimenntun. Í
yngri aldurshópnum er menntunin fjölbreyttari.
Alls gáfu þátttakendur upp 79 starfsheiti en þau al-
gengustu eru birt í mynd 2. Sumir gáfu ekki upp neitt starfs-
heiti þar sem þeir hafa einungis lokið grunnskólanámi eða
eru með almennt stúdentspróf (alls 6,2%). Gefa mátti upp
fleiri en eitt starfsheiti. Starfsheitin eru af fjölbreyttum toga
og spanna allar helstu iðngreinar, þjónustugreinar og störf
á heilbrigðissviði. Starfsheitin eru þverskurður af þeirri
menntun sem Pólverjar hafa og gefa góða vísbendingu um
þá menntun sem pólskir innflytjendur búa yfir.
Reynsla þátttakenda á vinnumarkaði er einnig yfirgrips-
mikil. Í mynd 3 má sjá þau störf sem oftast voru nefnd. Alls
gáfu þátttakendur upp 120 ólík störf sem þeir höfðu reynslu
af. Velja mátti fleiri en eitt starf, þar sem þátttakendur voru
beðnir að velja eða gefa upp alla starfsreynslu lengri en 6
mánuði sem þeir bjuggu yfir, hvort sem er á Íslandi eða ann-
ars staðar. Eins og sjá má á mynd 3 er reynsla af afgreiðslu-
störfum oftast nefnd en einnig hafa margir unnið iðnaðar-
störf, sem kokkar eða við þjónustu. Meðal áhugaverðra starfa
sem þátttakendur hafa reynslu af má nefna byggingu gler-
svala, glerblástur, stíflugerð, gangagerð, mannauðs stjórnun,
vinnu í brugghúsi, innanhússhönnun, umsjón tölvukerfa og
lögfræðistörf svo nokkur séu nefnd.
Þátttakendur voru spurðir hvort þeir hefðu áhuga á að
stunda starfstengt nám. Mikill meirihluti hefur áhuga á því,
eða alls 72,9%. 19,4% eru óvissir og 7,8% hafa ekki áhuga.
Munur er á konum og körlum í þessu sambandi og einnig
skiptir aldur og menntunarstig þátttakenda máli. 75,6%
kvenna sögðust hafa áhuga á móti 70,1% karla. Yngri svar-
endur hafa meiri áhuga en þeir eldri. Áhugasamasti hópurinn
er á aldrinum 41–50 ára, þar sem alls 81,8% sagðist hafa
áhuga á starfstengdu námi. Eins og sjá má á mynd 4 er það
starfstengda nám sem þátttakendur hafa mestan áhuga á
námskeið sem snýr að því hvernig á að stofna og reka fyrir-
tæki á Íslandi. Einnig kom fram áhugi á að fá tækifæri til að
taka meirapróf af ýmsum toga auk áhuga á leikskólaliða- og
félagsliðanámi.
Grunnskólapróf
Lokið verkmenntun
á framhaldsskólastigi
Lokið tæknimenntun
á framhaldsskólastigi
Lokið framhaldsskóla
Lokið háskóla
20,2%
10,1%
20,2 %
22,5%
22,1%
5,0%
0,0% 5,0% 10,0% 15,0% 20,0% 25,0%
Æðra námsstig,
nám á masters-
eða doktorsstigi
Mynd 1 – Menntun
11,2%
8,9%
8,1 %
7,0%
7,0%
6,2%
6,2%
5,8%
5,0%
4,7%
3,9%
3,9%
3,9%
3,5%
3,5%
Meistarapróf
Diplóma í
viðskiptafræði
BA-gráða eða BS-gráða
Bílstjóri
Matreiðslumaður
Húsgagnasmiður
Ég er ekki með
neina menntun
Matartæknir
Vélvirki
Byggingatæknir
Trésmiður
Bifvélavirki
Verslunarmaður
Rafsuðumaður
Afgreiðslumaður/
afgreiðslukona
Mynd 2 – Starfsheiti