Gátt - 2014, Blaðsíða 37
37
F r Æ Ð s L U M i Ð s t Ö Ð A t V i N N U L Í F s i N s
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
inu. Forsenda slíkrar viðurkenningar
er að fræðsluaðili noti gæðakerfi
með áherslu á nám fullorðinna (lög
um framhaldsfræðslu 27/2010).
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
(FA) hefur haft forgöngu um að þróa
gæðakerfi fyrir fræðsluaðila utan
hins formlega skólakerfis, European
Quality Mark (EQM), og er vottunar-
aðili EQM hér á landi. (Nánar má
lesa um tilurð gæðavottunarinnar á
vef FA: Fræðslumiðstöð atvinnulífs-
ins, e.d.-a) Gæðavottun EQM stað-
hróBjArtUr árNAsoN hásKóLA ÍsLANds, ásLAUg BárA LoFtsdóttir, BjArNdÍs FjóLA
jóNsdóttir, KristÍN ÞórAriNsdóttir og sÆrúN rósA ástÞórsdóttir
G Æ Ð A N Á M
Hróbjartur Árnason
G Æ Ð I Í K e N N S L U o G N Á M I
Það getur verið erfitt að henda reiður á gæði í starfi skóla
og annarra fræðslustofnana þar sem raunverulegur árangur
af starfinu, lærdómurinn sjálfur, verður til í samvinnu við þá
sem eiga að njóta gæðanna, þ.e. þátttakendurna. Starfsemi
fræðslustofnunar gengur út á að þátttakendur læri. Hún snýst
um að fólk, sem tekur þátt í atburðum sem eru skipulagðir
af stofnuninni, viti, skilji og geti eitthvað eftir atburðina sem
það vissi ekki og gat ekki áður, eða að það kunni og geti eitt-
hvað betur en áður. Það liggur í augum uppi að lítill verður
lærdómurinn án eigin vinnu þátttakenda. Þess vegna hlýtur
samstarf starfsfólks fræðslustofnunar og þátttakenda að
hafa úrslitaáhrif á árangurinn og þar með gæði námsins. Það
er til lítils ef húsnæði uppfyllir alla gæðastaðla, öll ferli eru
nákvæm, skráð og gagnsæ en þátttakendur læra ekki.
Nú þegar margar fræðslustofnanir, sem starfa að fram-
haldsfræðslu á Íslandi, hafa fengið gæðavottun (sjá lista yfir
vottaðar stofnanir í heimildaskrá: Fræðslumiðstöð atvinnu-
lífsins, e.d.-a) er við hæfi að spyrja hvaða áhrif gæðavottunin
og einkum vinnan sem gæðavottunin hefur í för með sér hafi
á starf þeirra.
Á námskeiði um gæðastjórnun vorið 2014, við námsleið-
ina Nám fullorðinna við Menntavísindasvið Háskóla Íslands,
ákváðu þátttakendur að kanna hvaða ávinning kennarar og
verkefnastjórar þeirra hefðu haft af undirbúningi fræðslu-
aðila í framhaldsfræðslu fyrir gæðavottun („gæðavinna“) og
EQM-gæðavottuninni sjálfri. Þessir tveir hópar starfsmanna
eru í nánum tengslum við þátttakendur og eru því í góðri
aðstöðu til að hafa áhrif á gæði námsins.
e Q M - G Æ Ð A V o T T U N
Með auknu vægi náms og menntunar á fullorðinsárum hafa
kröfur um fagmennsku í starfi fræðslustofnana aukist jafnt og
þétt. Gott dæmi um þetta er að í nýjum lögum um framhalds-
fræðslu gerir löggjafinn kröfu um að fræðslustofnanir, sem
vilja starfa samkvæmt lögunum og þar með fá fjárveitingu úr
ríkissjóði, skuli vera viðurkenndar af menntamálaráðuneyt-
Áslaug Bára Loftsdóttir
Kristín ÞórarinsdóttirBjarndís Fjóla Jónsdóttir
Særún Rósa Ástþórsdóttir