Gátt - 2014, Qupperneq 41
41
F r Æ Ð s L U M i Ð s t Ö Ð A t V i N N U L Í F s i N s
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
Þetta rímar við margt sem hefur verið skrifað um einkenni
fullorðinna námsmanna og hvers vegna þeir leggi stund á
skipulagt nám (sjá t.d. Jóhanna Rósa Arnardóttir & Jón Torfi
Jónasson, 2004) en það tengist líka einfaldlega því að það
er alltaf tilgangur kennslu að fólk læri eitthvað. Og flestir
sem skipuleggja nám, fjármagna það eða stunda það á full-
orðinsárum sjá helst tilgang í náminu ef þeir sjá fyrir sér
að geta nýtt það og fyrir fullorðið fólk virðist möguleikinn
að geta nýtt hið lærða í starfi oftast vera í forgangi. Mal-
colm Knowles (2012) er einn þeirra sem hefur lagt sérstaka
áherslu á þetta.
Góð tengsl við kennara
Viðmælendur nefndu sérstaklega góð tengsl leiðbeinenda
við þátttakendur sem mikilvægan þátt í gæðum í starfi
fræðslustofnunar:
0 Þetta snýst líka um að kennarinn sé í góðum tengslum
við nemandann, maður finnur það ef að kennarar halda
hópnum sínum í góðri virkni og ég bara sé það þegar fólk
nær tengslum við þátttakendur og mætingin er næstum
100% þeir halda þetta út og eru tilbúnir til þess að halda
áfram. Ég tel að gæðin felist í því að þú sért með kennara
sem getur lesið nemanda sinn og gefið upp hvað honum
finnst. Að hann sé ekki að fela það að þetta er ekki að
ganga og hvernig getum við unnið út úr því.
Eðli málsins samkvæmt er kennarinn í sérstakri stöðu þegar
hann kennir á námskeiði. Hann er í lykilaðstöðu til að móta
félagslegt andrúmsloft námskeiðsins. Müller (1990) færir
fyrir því sannfærandi rök að kennarinn skapi tiltekinn valda-
strúktúr á því námskeiði sem hann leiðir, allt eftir því hvaða
aðferðir hann velur og að hann geti þannig stýrt hvernig
samskipti á námskeiðinu þróast. Þannig stýrir val aðferða
því hvort þátttakendum á námskeiði finnist þeir geta nálgast
kennarann, spurt spurninga og unnið þannig með námsefnið
að þeir geti tengt það við eigin reynslu og jafnvel nýtt það í
eigin lífi og starfi. Þess vegna er það í verkahring kennarans
að skapa félagslegar aðstæður sem stuðla að námi. Þetta
viðhorf kemur greinilega fram í máli viðmælenda okkar. Það
er einnig áberandi í rannsóknum og kenningum um nám
almennt og sérstaklega nám á fullorðinsárum. Við rekumst
á þetta hjá fræðimönnum fyrri alda, eins og Comeniusi, sem
skrifaði um ævinám á 17. öld (sjá t.d. Comenius, 1986) en
það varð mjög áberandi hjá húmanistum eins og t.d. Carl
Rogers (1994) þegar hann uppgötvaði að fólki gekk mun
betur að læra þegar því var sýndur skilningur og fékk jákvæð
viðbrögð við viðleitni sinni til að læra. Malcolm Knowles
segir það beina afleiðingu af fullyrðingum hans um sérstöðu
fullorðinna námsmanna að það sé eitt hlutverk kennarans að
móta félagslegt námsumhvefi sem stuðli að námi (Knowles
o.fl., 2012).
Á H R I F G Æ Ð A V o T T U N A R
Markmið gæðastjórnunar hlýtur að vera aukinn árangur í
starfi. Þegar til stendur að innleiða aðferðir gæðastjórnunar
vinnur starfsfólk saman að því að skilgreina starfsemi sína
og að lýsa, skýra og skrá vinnuferla, ein afurð þeirrar vinnu
getur verið gæðahandbók sem starfsfólk nýtir sér til stuðn-
ings í vinnunni. Gæðavottun er síðan vottun utanaðkomandi
aðila um að tiltekið starf við skipulagningu verkferla og
sjálfsmat hafi farið fram, nauðsynlegar upplýsingar og ferlar
skráðir og að fræðslustofnunin starfi í samræmi við þá ferla
sem starfsfólkið hefur lýst. Því er þess að vænta að sú vinna,
sem fór fram í aðdraganda vottunar, hafi áhrif á starfsemina
sjálfa. Viðmælendur okkar gáfu til kynna hvaða áhrif starfið
við skráningu ferla, sjálfsmat og gæðavottunina sjálfa hafði
á vinnustaðinn þeirra. Þeim fannst að:
• allir verkferlar og upplýsingar séu einfaldari, skýrari og
aðgengilegri,
• skipulag sé mun betra en áður,
• skjalavarsla markvissari,
• afleysingar séu mun auðveldari þegar skráður nám-
skeiðsferill er til staðar,