Gátt - 2014, Side 47
47
F r Æ Ð s L U M i Ð s t Ö Ð A t V i N N U L Í F s i N s
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
I N N G A N G U R
Stöðugar breytingar eiga sér stað á vinnumarkaði á Íslandi
líkt og í öðrum vestrænum löndum, bæði hvað varðar
menntun og hæfni fólks á vinnumarkaði sem og hvers konar
störf eru í boði og hvaða menntunar og hæfni er krafist.
Ýmsir þættir hafa þar áhrif á svo sem ný tækni, hagsveiflur,
aukin alþjóðleg samskipti, breytt aldurssamsetning, búferla-
flutningar og breytt hugarfar og viðhorf til menntunar, svo
eitthvað sé nefnt. Þörf fyrir vinnuafl við ákveðin störf eða
innan ákveðinna atvinnugreina hefur minnkað vegna tækni-
framfara og þörf fyrir vinnuafl við annars konar störf og í
nýjum atvinnugreinum vex að sama skapi. Þá tekur samsetn-
ing vinnuafls stöðugum breytingum, til dæmis hvað varðar
menntun, sem aftur hefur víxlverkandi áhrif á þau störf sem
þörf er fyrir í samfélaginu.
Það er samfélaginu mikilvægt að hafa þokkalegar
upp lýsingar um hvernig vinnumarkaðurinn muni þróast á
komandi árum og áratugum. Ekki síst er það mikilvægt fyrir
menntakerfið, hvort heldur er hið formlega menntakerfi eða
það sem er meira óformlegt og snýr að endur- og símenntun
fólks í atvinnulífinu. Liggi fyrir þokkalegar spár um þróun
starfa og þeirrar hæfni sem krafist er í slík störf eru meiri
líkur á að menntakerfið sé búið undir að mæta fyrirsjáan-
legum breytingum á vinnumarkaði hvað varðar námsfram-
boð og skipulag.
Vandamálið er að erfitt getur verið að sjá fyrir þróun á
vinnumarkaði. Ný störf og jafnvel nýjar atvinnugreinar verða
til með tiltölulega skömmum fyrirvara og breytingar eru oft
örari en spár gera ráð fyrir. Menntakerfið getur átt erfitt með
að fylgja þeim breytingum eftir þar sem nokkur ár tekur fyrir
fólk að ljúka námi á framhalds- og háskólastigi. Á hinn bóg-
inn getur líka orðið óvænt bakslag vegna kreppu sem hefur
neikvæð áhrif á eftirspurn eftir ákveðinni hæfni.
Þó eru ákveðnir lykilþættir sem sjá má fyrir og eru hluti
langtímaþróunar sem ekki raskast svo mjög af skamm-
tíma hagsveiflum. Á það til dæmis við um sífellt hærra
menntunarstig nýrra kynslóða samhliða aukinni spurn eftir
menntuðu fólki á vinnumarkaði. Fyrirsjáanlegt er framhald
þeirrar þróunar sem verið hefur um færslu starfa frá fram-
leiðslustörfum og iðnaði yfir í verslun og þjónustu. Mann-
fjöldaþróun er nokkuð fyrirsjáanleg til næstu áratuga enda
ólíklegt að fæðingartíðni og lífslíkur breytist umtalsvert og
eru búferlaflutningar því stærsti óvissuþátturinn hvað það
varðar.
KArL sigUrÐssoN
F Æ R N I þ Ö R F Á V I N N U M A R K A Ð I
Með umsókn um aðild að Evrópusambandinu fyrir nokkrum árum fékk Fræðslumiðstöð
atvinnulífsins styrk til að þróa betur upplýsingaöflun, upplýsingagjöf og ráðgjöf sem tengist
starfshæfni á vinnumarkaði. Einn liður í verkefninu var að vinna betur mat á framtíðarfærni-
þörf á vinnumarkaði og var Vinnumálastofnun fengin til þess verkefnis og hefur vinnunni
við þennan þátt verið stýrt af greinarhöfundi.
Um nokkurt skeið hefur greinarhöfundur jafnframt komið að verkefni á vegum Evrópu-
sambandsins þar sem unnið hefur verið að þróun líkans til að greina betur þróun vinnu-
markaðar, vinnuafls, færniþarfar og samspils færniþarfar og menntunar í Evrópu. Markmið
verkefnisins er að móta betur spár um færniþörf á evrópskum vinnumarkaði 10–20 ár fram
í tímann og er þess vænst að það nýtist Evrópusambandinu og einstökum ríkjum á Evrópska
efnahagssvæðinu (EES) við mótun stefnu um vinnumarkaðsmál, menntun og færniþörf.
Höfundur vinnur að skýrslu um færniþörf á íslenskum vinnumarkaði sem kemur út bráð-
lega. Í þessari grein er rakið það helsta úr þessari vinnu sem snýr að íslenskum vinnumark-
aði.
Karl Sigurðsson