Gátt - 2014, Qupperneq 61
61
F r Æ Ð s L U M i Ð s t Ö Ð A t V i N N U L Í F s i N s
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
vitum að markhópurinn er bæði stór og margbreytilegur,
enda þótt einstaklingar innan hans eigi það sameiginlegt
að skorta grunnleikni. Það hefur líka sitt að segja að hinir
ólíku geirar í atvinnulífinu hafa ólíkar þarfir og möguleika
á að veita starfsfólki tækifæri til menntunar. Stóru fyrir-
tækin hafa rýmri möguleika en hin smærri. Þar sem nám-
skeið í grunnleikni krefjast þess að starfsfólk sé alveg eða
að hluta frá vinnu eiga minnstu fyrirtækin oft litla möguleika
á að að koma til móts við starfsfólkið. Hvatinn til að taka
þátt í námskeiði dvínar þegar námskeiðin bætast við fullan
vinnudag. Um skeið reyndum við að leysa þetta með því að
gera fyrirtækjunum kleift að sækja um aukastyrk til að kosta
afleysingu, en féllum svo frá því. Því hefur það gefið góða
raun að svæðisbundin samtök fyrirtækja sækja sameiginlega
um námskeiðsstuðning fyrir mörg smærri fyrirtæki.
Hvað með innihald námskeiða?
BKA hefur lagt mikla áherslu á að námsefni námskeiðanna
fjalli raunverulega um grunnleikni og ekki um sértækt nám
sem varðar einstök fyrirtæki eða fagmenntun. Auðvitað má
líta á nám í grunnleikni sem undirbúning fyrir fagmenntun
sem er hluti af skólakerfinu. Það er mikilvægt að starfsmað-
urinn njóti góðs af náminu og þar með fyrirtækið. Vox veitir
góða leiðsögn til væntanlegra umsækjenda um lýsingar
á námsefni. Einnig má segja að það sem einkennir góðar
umsóknir er hve vel og ítarlega innihaldi námskeiðsins er lýst
í samræmi við námsmarkmið um grunnleikni.
eru einhverjar upplýsingar fyrir hendi um
árangur af bKA verkefninu?
BKA verkefnið hefur margoft verið metið og árið 2012
beindist matið sérstaklega að árangri. Greiningarstofnunin
PROBA framkvæmdi matið samkvæmt beiðni mennta-
málaráðuneytisins. Matsstofnunin lagði til grundvallar ítar-
legar upplýsingar frá fyrirtækjum sem hafa haft starfsfólk á
BKA námskeiðum og upplýsingar frá þátttakendum á þeim
sömu námskeiðum. Það mikilvæga í þessu sambandi er hvort
notendurnir, fyrirtækin og starfsfólkið, meti námskeiðin svo
að þau komi að gagni. Hingað til sýnir allt mat að svo er,
notendurnir eru mjög ánægðir með BKA.
Okkur leikur forvitni á að vita meira um árangurinn af
því að veita svona háum fjárhæðum til að styrkja námskeið
og hefur Vox því óskað eftir sérstakri rannsókn á árangri
náms í munnlegri tjáningu. Grunnleikniþátturinn munnleg
tjáning var ekki með í námsframboðinu í upphafi starfsemi
BKA og því viljum við rannsaka þann þátt núna og skoða
hvernig námið fer fram. Við rannsóknina verður notast við
margskonar aðferðir, svo sem árangursmælingar, viðtöl og
próf og ekki síst að nefna verða gerðar sérstakar rannsóknir
í þeim fyrirtækjum þar sem starfsfólk hefur tekið þátt í nám-
skeiðum. Þau fyrirtæki sem eftir því hafa óskað, hafa fengið
stuðning til þess og við fáum tækifæri til að rannsaka hvað
S K I L G R e I N I N G
Verkefnaáætlun um grunnleikni í atvinnulífinu, BKA (Basiskompetanse i
arbeidslivet) var sett á laggirnar árið 2006. Áætlunin veitir fyrirtækjum
og stofnunum fjárhagsstuðning til að kenna og þjálfa starfsfólk sitt í
lestri, skrift og reikningi, ásamt tölvufærni og munnlegri tjáningu. Ríf-
lega tveimur milljörðum íslenskra króna hefur verið varið til verkefnisins
undanfarin ár. Í fjárlagafrumvarpi norsku ríkisstjórnarinnar fyrir 2015 er
gert ráð fyrir ríflega þremur milljörðum króna til þess að efla grunnleikni
fullorðinna.
BKA er þáttur í stefnu stjórnvalda um betri færni og miðar að því
að veita fullorðnum nauðsynlega færni til þess að geta mætt kröfum
atvinnulífsins og til þess að geta tekið virkan þátt í samfélaginu.
Niðurstöður PIAAC rannsóknarinnar um færni fullorðinna, sem
gerð var í 24 löndum og birt árið 2013, sýna að í Noregi þurfa 400.000
einstaklingar að bæta læsi, 480.000 þurfa að efla leikni í reikningi og
800.000 þurfa að efla tölvu-, upplýsinga- eða samskiptahæfni sína.
Flestir þessara einstaklinga eru við störf í atvinnulífinu. Með því að auka
hæfni starfsfólks er því gert auðveldara að laga sig að nýjungum og
breytingum. Jafnframt felst í slíkri færniaukningu hvatning til að ráðast
í enn frekara nám.
Tom Sigurd Sørhus, deildarstjóri hjá Landsskrifstofu um færniþróun í Noregi,
Vox.