Gátt - 2014, Síða 65
65
F r Æ Ð s L U M i Ð s t Ö Ð A t V i N N U L Í F s i N s
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
út rammaviðmið um hæfni í upp-
lýsingatækni og er henni skipt á
fjögur svið, grunnþekkingu á upp-
lýsingatækni, hæfni í að nálgast
upplýsingar, samskiptahæfni með
aðstoð upplýsingatækni og sköpun
með aðstoð upplýsingatækni.
Þriðja námskeiðið var skipulagt af
ACEFIR, katalónskum samtökum um
menntun, þjálfun og rannsóknir og
fjallaði aðallega um læsiskennslu
ólæsra innflytjenda, sem var einnig
meginþema fjórða námskeiðsins, sem haldið var hjá VOX í
Noregi. Almennt var mikill áhugi á námskeiðunum og má
geta þess að yfir 200 manns sóttu um að komast að á fjórða
námskeiðið en einungis var pláss fyrir 20 þátttakendur á
hverju námskeiði.
Greinarhöfundar sóttu tvö af þessum fjórum nám-
skeiðum, Halla Valgeirsdóttir sat fyrsta námskeiðið og Sól-
borg Jónsdóttir og Guðfinna Harðardóttir sátu það fjórða.
Á fyrsta námskeiðinu3 voru kynntar leiðir til þjálfunar fyrir
3 Fyrirlestrana má finna á https://www.youtube.com/watch?v=RSe5K1-
CCoE&index=2&list=PLIkpR5lMu6I3IztQCUzoa-SM7GPG_ZFLK
gUÐFiNNA hArÐArdóttir, hALLA VALgEirsdóttir og sóLBorg jóNsdóttir
e V R ó P S K T S A M S T A R F S N e T U M G R U N N L e I K N I
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA) hefur átt aðild að
evrópsku samstarfsneti um eflingu grunnleikni full-
orðinna (European Basic Skills Network, EBSN), frá
stofnun þess árið 2010. Meðlimir netsins eru ríflega
70 og koma frá 27 Evrópulöndum og þremur löndum
utan Evrópu. Netið er opið ráðuneytum og stofnunum
sem móta stefnu um málaflokkinn, sinna rannsóknum á
sviðinu eða eru fulltrúar samtaka sem vinna að eflingu
grunnleikni fullorðinna. Sýn EBSN er að öllum verði
tryggður aðgangur að þjálfun þeirrar grunnleikni sem
þarf til að geta verið virkir þátttakendur í námi, starfi
og samfélagi. Með grunnleikni er átt við læsi, ritun,
meðferð talna, færni í að tjá sig og notkun upplýsinga-
tækni.1
Halla Valgeirsdóttir
Sólborg Jónsdóttir
Guðfinna Harðardóttir
Forsprakki EBSN er Graciela Sbertoli, sérfræðingur hjá VOX
í Noregi, og er hún formaður framkvæmdanefndar EBSN en
skrifstofa netsins er hjá ungverskum samtökum um ævinám
(e. The Association for Life long Learning (ALLL)). Vefsíða
samstarfsnetsins er http://www.basicskills.eu/.
Meðal þess sem samstarfsnetið hefur lagt áherslu á frá
upphafi er að vinna að skýrari stefnumótun um nám leiðbein-
enda í fullorðinsfræðslu, sem sérhæfa sig í að aðstoða full-
orðna við að ná aukinni grunnleikni. Í því skyni voru haldin
fjögur námskeið (EBSN Academy) þar sem þátttakendur voru
fyrst og fremst þeir sem sinna kennaramenntun, þjálfun leið-
beinenda eða hönnun náms í grunnleikni. Fyrsta námskeiðið
var haldið hjá VOX í Noregi og fjallaði meðal annars um
nýlegar niðurstöður PIAAC2 könnunar OECD á grunnleikni
fullorðinna og um þjálfun leiðbeinenda og kennara sem
kenna grunnleikni með áherslu á notkun upplýsingatækni.
Annað námskeiðið var skipulagt af menntamálaráðuneyti
Lúxemborgar og fengu þátttakendur meðal annars kynningu
á nýlegri rammaáætlun landsins um grunnleikni fullorðinna
sem lýsir hæfnimarkmiðum á fimm sviðum, ritun, læsi, tal-
máli, hlustun og talnalæsi. Þá hefur Lúxemborg einnig gefið
1 Sjá umfjöllun um grunnleikni í grein Guðmundu Kristinsdóttur í þessu riti.
2 Niðurstöður fyrstu könnunar OECD á grunnleikni fullorðinna voru gefnar
út þann 8. október 2013, sjá frekari umfjöllun í Gátt 2013.