Gátt - 2014, Page 74
74
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
A Ð d R A G A N d I
N Á M S Í F I S K T Æ K N I
Á S A U Ð Á R K R ó K I
H A U S T I Ð 2 0 1 4
Í febrúar 2014 hófst tilraunaverk-
efnið Menntun núna í Norðvestur-
kjördæmi og stendur það yfir í eitt
ár eða til janúarloka árið 2015.
Háskólinn á Bifröst hefur yfirumsjón
með verkefninu og gerði sam-
starfssamning við þrjár fræðslu- og
símenntunarmiðstöðvar í kjördæm-
inu um framkvæmd. Miðstöðvarnar
eru: Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi, Fræðslumiðstöð
Vestfjarða og Farskólinn – miðstöð símenntunar á Norður-
landi vestra. Í upphafi verkefnisins voru sett metnaðarfull
og mælanleg markmið sem byggðust á viðamikilli rannsókn
sem gerð var sumarið 2013 í kjördæminu í tengslum við verk-
efnið sem á þeim tíma nefndist: Tilraunaverkefni um hækkað
menntunarstig í Norðvesturkjördæmi. Í rannsókninni var
meðal annars rætt við stjórnendur fyrirtækja, almenna
starfsmenn þeirra og fólk af erlendu bergi brotið.
F R Æ Ð S L U e R I N d R e K S T U R o G
R A U N F Æ R N I M A T
Hér verður sagt frá tveimur af þeim markmiðum sem sett
voru í verkefninu Menntun núna í Norðvesturkjördæmi þar
sem þau tengjast fisktækninámi sem nú fer fram á Sauðár-
króki. Fyrra markmiðið er að fræðslu- og símenntunarmið-
stöðvarnar í kjördæminu heimsæki ákveðinn fjölda fyrirtækja
og stofnana. Til að framfylgja þessu markmiði var samið um
svokallaðan fræðsluerindrekstur hjá miðstöðvunum en það
felur í sér að starfsmenn miðstöðvanna fara út af örkinni og
heimsækja fyrirtæki; kynna þeim hvaða nám er í boði frá
hinum ýmsu fræðsluaðilum, aðstoða fyrirtækin við að koma
á fót námskeiðum og sækja um styrki til að halda námskeið
fyrir sitt starfsfólk.
Meðal fyrirtækja, sem fræðsluerindrekar Farskólans
heimsóttu snemma vors 2014, var sjávarútvegsfyrirtækið
FISK Seafood ehf. á Sauðárkróki. Þá höfðu FISK og Fjöl-
brautaskóli Norðurlands vestra ásamt fleiri skólum og fyrir-
tækjum á landsbyggðinni unnið að því um nokkurt skeið að
koma á nýju námi fyrir starfsfólk í fiskvinnslu. Þær hugmyndir
voru í biðstöðu þegar þarna var komið sögu.
Á fyrstu fundum með FISK var rætt almennt um nám fyrir
starfsfólk FISK og voru stjórnendur fyrirtækisins mjög áhuga-
samir um fræðslu fyrir sitt starfsfólk enda miklar breytingar
fram undan hjá fyrirtækinu því í náinni framtíð verður lögð
meiri áhersla á fullvinnslu sjávarafla en verið hefur undan-
farin ár. Haldnir voru kynningarfundir með starfsfólkinu þar
sem fisktækninám og raunfærnimat í fisktækni var kynnt.
Á þessum fundum lýstu stjórnendur FISK yfir stuðningi við
námið og hvöttu þeir starfsfólkið til að nýta sér þetta náms-
tækifæri enda er það stefna fyrirtækisins að hafa yfir að ráða
vel menntuðu starfsfólki. Í kjölfar þessara funda hófst undir-
búningur við að koma á fót raunfærnimati á móti námskrá
Fisktækniskóla Íslands og að fisktækninám hæfist á Sauðár-
króki haustið 2014 í samstarfi Farskólans, Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra (FNV), FISK og Fisktækniskóla Íslands í
Grindavík.
Annað markmið, sem sett er fram í verkefninu Menntun
núna í Norðvesturkjördæmi, er að aðstoða 60 einstaklinga
í öllu kjördæminu við að komast í raunfærnimat. Þetta
þýðir að um það bil 15 manns eiga að fara í raunfærnimat
á starfssvæði Farskólans meðan á verkefninu stendur. Þátt-
taka í raunfærnimati fór hins vegar fram úr björtustu vonum
því samtals fóru 28 einstaklingar í raunfærnimat hjá Far-
skólanum vorið 2014 og af þeim fóru sautján einstaklingar í
raunfærnimat á móti viðurkenndri námskrá í fisktækni.
BrYNdÍs KristÍN ÞráiNsdóttir
F I S K T Æ K N I N Á M Í S K A G A F I R Ð I – S A M S T A R F
S K ó L A o G A T V I N N U L Í F S
Bryndís Kristín Þráinsdóttir