Gátt - 2014, Side 76
76
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
og fyrr hefur verið nefnt. Í þeim áföngum, sem flestir starfs-
menn fengu metna að fullu, voru einungis eftir fjórir náms-
menn til að sitja áfangana. Farskólinn sótti því um sérstakan
styrk fyrir hönd samstarfsaðila í sjóð sem tilheyrir verkefninu
Menntun núna í Norðvesturkjördæmi til að fjármagna þann
kostnað sem upp á vantaði. Sá styrkur fékkst. Farskólinn
óskaði einnig formlega eftir heimild til Fræðslumiðstöðvar
atvinnulífsins um að kenna Grunnmenntaskólann sem hluta
af Fisktæknináminu. Það kom í ljós að Grunnmenntaskólinn,
sem er 300 kennslustundir að lengd, hentar vel sem umgjörð
utan um almennu bóklegu greinarnar í fisktæknináminu.
Fræðslumiðstöðin veitti samþykki sitt fyrir því og Fjölbrauta-
skóli Norðurlands vestra mun meta Grunnmenntaskólann til
eininga til náms í skólanum.
Fisktækninámið á Sauðárkróki er skipulagt sem fjögurra
anna nám. Stefnt er að námslokum vorið 2016 frá Fjölbrauta-
skóla Norðurlands vestra.
N Á M S Á F A N G A R S e M K e N N d I R
e R U H A U S T I Ð 2 0 1 4
Á haustönn 2014 eru fimm námsáfangar kenndir í Fisktækni-
náminu. Við upptalningu áfanganna eru tilvísanir í námskrá
Fisktækniskólans.
Í Farskólanum eru eftirfarandi áfangar kenndir:
• Námstækni og samskipti. Námsmaður „tileinkar
sér námstækni sem hæfir þörf hans, getu og náms-
nálgun. Hann þekkir námsumhverfi, starfsumhverfi
og störf sem nám í fisktækni býður og öðlast innsýn
í menningu fyrirtækja í veiðum, vinnslu og fiskeldi“.
• Upplýsingatækni 1. Námsmaður öðlast grunnfærni í
tölvunotkun þar sem hann getur „sett upp texta, með-
höndlað töluleg gagnasöfn og sett upp til kynningar“.
Eftirtaldir áfangar eru kenndir í Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra:
• Vinnuvélar. Þessi áfangi samsvarar námskeiði hjá
Vinnueftirliti ríkisins. Í þessum áfanga lærir náms-
maður „umgengni og meðferð lyftara, dráttarvéla og
bryggju- og skipskrana“.
• Uppsetning og viðhald HACCP-kerfa. Náms-
maður öðlast „þekkingu og leikni til vinna samkvæmt
HACCP-kerfi. Hann setur upp kerfi undir leiðsögn, inn-
leiðir og metur“.
Eftirtalinn áfangi er fjarkenndur frá Fisktækniskóla Íslands í
Grindavík. Námsmenn í þessum áfanga koma inn í hóp hjá
Fisktækniskóla Íslands. Þessir námsmenn eru fjórir og fóru
ekki í raunfærnimat.
• Fisktækni 1. Þegar áfanga er lokið og tilsvarandi
vinnustaðanámi hefur námsmaður „öðlast grunn-
þekkingu og leikni í öllum almennum þáttum fisk-
vinnslu“.
Myndin er tekin við setningu námsins í Farskólanum. Lengst til hægri er Jón Eðvald Friðriksson, framkvæmdastjóri FISK. Efri röð til vinstri er Bryndís Þráinsdóttir,
framkvæmdastjóri Farskólans. Neðri röð til vinstri er Ingileif Oddsdóttir, skólameistari FNV.