Gátt - 2014, Page 78
78
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
e R M U N U R Á
M e N T o R o G M A R K -
þ j Á L F A ?
Hugtakið mentor á uppruna sinn í grískri goðafræði þar sem
Mentor var traustur vinur Ódysseifs. Áður en Ódysseifur hélt
af stað í Trójustríðið bað hann Mentor um að taka son sinn
Telemakkos í fóstur á meðan. Mentor varð þannig holdgerv-
ing viskunnar því Aþena sjálf talaði í gegnum hann og hlut-
verk hans var ekki aðeins að kenna og leiðbeina Telemakkosi
heldur einnig að koma honum í föður og móður stað. Þannig
átti Mentor stóran þátt í þroska einstaklingsins og enn í dag
er ímynd mentors þessi, að um sé að ræða þroskaðan ein-
stakling sem hefur meiri þekkingu og reynslu en lærlingurinn
(e. mentee). Hlutverk mentors er því að miðla af þekkingu
sinni og reynslu og hafa þannig áhrif á þroska lærlingsins og
koma honum til manns, þ.e. mennta1 hann.
Upprunalega merkingu enska orðsins coach má rekja
til ungverska bæjarins Kocs þar sem farið var að framleiða
hestvagna á 15. öld. Orðið var tekið upp í öðrum tungu-
málum svo sem í ensku coach, í spænsku og portúgölsku
coche, í þýsku Kutsche og í slóvensku og tékknesku koč sem
heiti yfir slíka vagna. Á fyrri hluta 19. aldar fara stúdentar
við Oxford-háskóla að nota hugtakið coach sem slanguryrði
yfir leiðbeinendur sem taka stúdenta í einkakennslu til að
1 Skv. Íslenskri orðabók merkir sögnin að mennta bæði að kenna e-m e-ð
og að ala e-n upp, þ.e. koma honum til manns.
undirbúa þá fyrir próf og þaðan yfirfærist þessi merking hug-
taksins á íþróttaþjálfara og síðar á markþjálfa.
Hlutverk fóstra (mentor) og markþjálfa (coach) geta verið
ólík að einhverju leyti þar sem fóstrinn hefur iðulega yfir-
burðaþekkingu á viðfangsefninu og hlutverk hans er að koma
þessari þekkingu til skila og efla þar með hæfni einstaklings-
ins til að sinna starfi sínu. Markþjálfinn þarf ekki að búa yfir
þessari yfirburðaþekkingu heldur felst hlutverk hans í því að
aðstoða einstaklinginn við að finna leiðirnar sjálfur og tileinka
sér hegðun sem leiðir til árangurs. Þetta þýðir þó ekki að ávallt
sé um tvö aðskilin hlutverk að ræða því í leiðsögn annarra felst
oft hvort tveggja, þ.e. að miðla þekkingu og að kveikja með
námsmanninum löngun til að læra og ná markmiðum sínum.
M A R K þ j Á L F U N e R A Ð F e R Ð T I L A Ð
e F L A e I N S T A K L I N G I N N
Markþjálfun (e. coaching) er aðferð til að efla einstakling-
inn við að auka sjálfsvitund sína, finna aðferðir til að leysa
vandamál sín og hámarka frammistöðu sína. Lögð er áhersla
á að einstaklingurinn greini markmið sín, hvaða hvatir
liggja að baki þeim, hvaða leiðir eru færar og hvaða hindr-
anir standa í vegi fyrir því að hann nái þessum markmiðum
sínum. Hlutverk markþjálfans er að hjálpa einstaklingnum
að gera sér grein fyrir því hvað hann vill í raun og veru og
hvernig hann getur náð árangri. Markþjálfinn varast að segja
einstaklingnum til um hvaða leiðir hann skuli velja heldur
hvetur hann einstaklinginn til að taka sjálfur ákvarðanir í
eigin lífi og á eigin forsendum.
gUÐFiNNA hArÐArdóttir
T e N G S L M A R K þ j Á L F U N A R o G
F U L L o R Ð I N S F R Æ Ð S L U
Guðfinna Harðardóttir
Aðferðafræði markþjálfunar er ekki ný af nálinni enda má segja að Sókrates hafi beitt
þessari aðferð þegar hann spurði viðmælendur sína spurninga og hvatti þá til gagnrýninnar
hugsunar. Spurningar Sókratesar snerust ekki um að laða fram svör við almennri þekkingu
heldur að fá fólk til að íhuga viðmið sín, gildi og fastmótaðar hugmyndir með því að ástunda
gagnrýna hugsun. Hlutverk markþjálfa nútímans er ekki ósvipað þar sem hann leitast við að
opna augu einstaklingsins fyrir styrkleikum sínum og markmiðum, hugsa í nýjum leiðum og
skuldbinda sig til að ná þeim árangri sem sóst er eftir. Hér á eftir verður fjallað um mark-
þjálfun og tengsl við hugmyndir um fræðslu fullorðinna og sagt frá evrópsku samstarfs-
verkefni sem Fræðslumiðstöð atvinnulífsins tók þátt í og lauk fyrr á þessu ári.