Gátt - 2014, Qupperneq 86
86
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
Andri Steinn birgisson:
„SAMTALIÐ SeM bReyTTI L ÍF I
MÍNU“
Allt síðan kreppan skall á árið 2008 hefur verið gripið til
fjölbreyttra aðgerða til þess að koma á móts við þarfir þess
unga fólks sem varð atvinnulaust í kjölfarið
með ýmsum átaksverkefnum, námsúrræðum
og náms- og starfsráðgjöf. Oftar en ekki missa
þeir fyrst atvinnuna sem minnsta menntun og
stysta reynslu á vinnumarkaði hafa. Þannig fór
einnig fyrir ungum Reykvíkingi, Andra Steini
Birgissyni.
Aftur í nám jók sjálfstraust Andra Steins og
opnaði ný tækifæri
Hann var 22 ára og tveggja barna faðir þegar hann missti
vinnuna. Hafði verið nokkur ár á vinnumarkaði, meðal
annars komist á samning hjá fótboltaliði í Englandi. Andra
Steini hafði ekki gengið vel í skóla og átti erfitt með lestur.
En það var ekki fyrr en viku áður en samræmdu prófin áttu að
hefjast sem hann fékk greiningu: lesblindur! Þrátt fyrir það
langaði hann alltaf til þess að mennta sig en lét lesblinduna
hindra sig. Fyrir hvatningu konu sinnar lét hann þó tilleiðast
og skráði sig hjá Mími-símenntun í námsleiðina Aftur í nám1
vorið 2011.
Sá glitta í ljósið
„Eftir á að hyggja finnst mér ótrúlegt að það voru engin
úrræði í boði í skólanum,“ segir Andri Steinn. „Ég hafði
alltaf kviðið fyrir að þurfa lesa upphátt fyrir allan bekkinn
og skólinn og lærdómur var neðarlega í forgangsröðinni.“
Þess vegna ákvað Andri Steinn að einbeita sér að fótbolt-
anum í stað þess að afla sér menntunar. Nítján ára bauðst
honum að komast á samning sem atvinnumaður hjá tveimur
félögum á Englandi. Þegar til kom varð ljóst að annað félagið
gat ekki staðið við samninginn. Hitt félagið dró aftur tilboðið
um samning eftir að Andri Steinn meiddist í bílslysi. Meiðslin
komu ekki aðeins í veg fyrir ráðningu heldur gerðu að engu
1 Aftur í nám er námstilboð hannað af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, ætlað
fullorðnum einstaklingum sem eiga í erfiðleikum með lestur og ritun.
Námskeiðið er 95 klst. og felur í sér lesleiðréttingu samkvæmt Ron Davis-
aðferðinni.
drauma um atvinnumennsku. Andri Steinn hélt heim til
Íslands og fékk vinnu við akstur og afgreiðslu.
„Þá fór ég að hugsa um annað en fótbolta. Mig hafði
lengi dreymt um að verða slökkviliðsmaður en var ljóst að
til þess yrði ég að hafa meiri menntun. Eiginkona mín hvatti
mig og studdi og hjá Mími-símenntun var boðið upp á náms-
og starfsráðgjöf. Til allrar hamingju þáði ég boðið fór og hitti
Þuríði Ósk Sigurjónsdóttur. Samtalið breytti lífi mínu!“
þau gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til að
aðstoða okkur
Andri Steinn fór í Aftur í nám, þar öðlaðist hann meiri trú á
sjálfan sig og varð ljóst að náms- og starfsráðgjafinn hafði
rétt fyrir sér, námið væri mikil vinna sem hann gæti vel tekist
á við. Með ráðgjafanum setti Andri Steinn sér skýr mark-
mið, sótti fleiri námstilboð, næst Grunnmenntaskólann. Með
mikilli þrautseigju styrktist hann sem námsmaður, tókst á við
fjölmargar áskoranir og lauk námskeiðinu í desember 2011. Í
janúar 2012 hóf Andri Steinn nám í Menntastoðum, þar lagði
hann á sig gríðarlega vinnu, tók námið föstum tökum með
góðri ástundun. „Það var ekki alltaf auðvelt en með eljusemi
útskrifaðist ég frá Mími-símenntun í júní 2012.“
Andri Steinn hælir náminu hjá Mími: „Náms- og starfs-
ráðgjafinn og kennararnir hjá Mími voru þarna fyrir mig, ekki
bara til þess að þiggja launin sín. Þau lögðu sig fram fyrir mig
en ekki fyrir sig. Einhver hafði ávallt tíma til þess að spjalla
við mig um það sem ég var að takast á við hverju sinni og
hvöttu mig öll til dáða.“
er í háskólanámi
Hann komst svo inn í Háskólann í Reykjavík og hefur nú
lokið fjórum önnum í íþróttafræði. Þar að auki hefur hann
tekið meiraprófið og hefur þar með færst nær takmarkinu að
draumastarfinu í slökkviliði. Takist það ekki þá getur hann
vel hugsað sér að starfa við íþróttir. Gefum náms- og starfs-
ráðgjafanum hans síðasta orðið: „Andri Steinn á fyllilega
skilið að vera fyrirmynd í námi fullorðinna,“ segir Þuríður
Ósk. „ Hann hefur sýnt virkilegar framfarir miðað við upp-
hafsstöðu. Hann hefur öðlast trú á eigin námsgetu og er
komin í háskólanám, eitthvað sem hann grunaði ekki að ætti
eftir að liggja fyrir sér. Þessa styrkingu hefur hann fengið í
gegnum vottaðar námsleiðir Fræðslumiðstöðvar atvinnu-
lífsins ásamt því að njóta stuðnings frá náms- og starfsráð-
gjafa hjá okkur í Mími-símenntun. En fyrst og fremst hefur
Andri Steinn komist áfram á eigin vinnu, með það hugarfar