Gátt - 2014, Page 90

Gátt - 2014, Page 90
90 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4 F A N G e L S I S e M N Á M S V e T T V A N G U R Yfirskrift ráðstefnunnar, sem er sú 16. í röðinni, var fang- elsi sem námsvettvangur (Fengsel som læringsarena) með áherslu á ráðgjöf og hvatningu. Í kringum 140 þátttakendur frá öllum Norðurlöndunum sóttu ráðstefnuna. Fyrsta ráð- stefnan um menntun fanga var haldin árið 1977 með þátt- töku allra Norðurlandaþjóðanna. Ísland hefur átt fulltrúa á síðustu fimm ráðstefnum. Frá árinu 1994 hafa þessar ráð- stefnur verið haldnar á tveggja ára fresti til skiptis á Norður- löndunum. Ráðstefna sem þessi var haldin á Íslandi árið 2006 og eftir tvö ár verður hún aftur haldin hér á landi. Ráðstefnan samanstóð af erindum um stöðu menntunar í fangelsum á Norðurlöndunum, sögulegu yfirliti um menntun fanga og fræðilegum erindum með áherslu lagða á megin- þemu ráðstefnunnar, ráðgjöf og hvatningu. Jafnframt voru 11 vinnustofur í boði sem þátttakendur gátu valið á milli. Fram kom að mikilvægt er að bjóða viðeigandi samsetn- 1 Sótt 15.09.2014 af http://www.fangelsi.is/frettir/nr/172. ingu úrræða, s.s. meðferð, menntun og virkniúrræði, ekki síst þar sem markhópurinn verður sífellt þyngri, með tilliti til menntunarstöðu og félagslegrar stöðu fanga. Því skiptir máli að geta greint vandamál og þarfir fanga eins fljótt og hægt er. Það getur þó oft og tíðum reynst torvelt þar sem fangar eiga oft erfitt með að meðtaka það sem fer fram hjá ráðgjöfum eða í kennslustundum við upphaf afplánunar því þá eru þeir aðallega að hugsa um aðstæður sínar og sætta sig við þær. Það þarf að líða einhver tími áður en þeir geta farið að huga að öðru. Jafnframt þarf sérstaklega að huga að þörfum þeirra sem ekki eru tilbúnir til að fara út á vinnu- markaðinn eða í nám eftir að fangelsisvist lýkur. Fyrirkomulag náms í fangelsum á Norðurlöndum er mis- jafnt að því leyti að sumstaðar eru reknir skólar innan fang- elsanna en í öðrum tilvikum er gerður samningur við skóla eða aðrar fræðslustofnanir um að halda utan um námsfram- boðið innan fangelsisins. Hjá nánast öllum þjóðunum er lögð áhersla á að leita leiða til að geta eflt tölvustutt nám. Á Íslandi er netaðgangur í opnum fangelsum en aðgangur að netinu er undir eftirliti í lokuðum fangelsum. Í könnun sem gerð var árið 2007 að tilhlutan mennta- og menningarmálaráðuneytisins og dóms- og kirkju- málaráðuneytisins í samvinnu við Fangelsismála- stofnun ríkisins um menntun, menntunarbakgrunn og námsáhuga íslenskra fanga, 18 ára og eldri, kom fram að um 36% svarenda höfðu ekki lokið grunnskóla og 28% höfðu ekki lokið framhaldsskóla. Samkvæmt þessu er stór hluti fanga í markhópi sem kveðið er á um í framhaldsfræðslulögunum.1 Fræðslumiðstöð atvinnulífsins fékk Erasmus plus styrk til að senda tvo starfsmenn á ráðstefnu sem haldin var dagana 24.–26. september um menntun í fangelsum. Ráðstefnan var haldin í Kaupmannahöfn á vegum norræns tengslanets um menntun í fangelsum (Nordisk netværk om feng- selsundervisning) sem er eitt af netum NVL (Norrænt tengslanet um nám fullorðinna). Erlendur Baldursson, sem nýverið lét af störfum hjá Fangelsismálastofnun, hefur verið tengiliður Íslands í netinu. Markmiðið með þátttöku í ráðstefnunni var að kynnast því sem er að gerast á Norðurlöndum varðandi menntun fanga í því skyni að skoða hvort og þá hvernig framhaldsfræðslan getur komið að því verkefni hér á landi. hALLA VALgEirsdóttir og iNgiBjÖrg ELsA gUÐMUNdsdóttir F A N G e L S I V e T T V A N G U R F y R I R N Á M Ingibjörg Elsa GuðmundsdóttirHalla Valgeirsdóttir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Gátt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.