Gátt - 2014, Page 92
92
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
halda virðingu. Þetta er flókið ferli þar sem virðing er lykil-
hugtak, ef kennari missir virðingu sína þá tapar hann um leið
völdum. Þess vegna er mikilvægt að nemendur hafi frelsi til
að samþykkja eða hafna þátttöku í ákveðnum aðgerðum eða
athöfnum innan kennslustofnunar því valdatengsl byggja á
sambandi einstaklinga sem hafa frelsi. Það er áskorun að
finna jafnvægi í þessum valdatengslum þegar talað er um
völd og frelsi í kennslustofu innan fangelsa.
Í enn annarri vinnustofu var fjallað um námsleiðir fyrir
fanga og hvernig hægt er að skilgreina gæði í menntun
fanga þar sem þeir hafa ekki sömu valmöguleika og aðrir.
Í Finnlandi er í gangi verkefni sem byggir á þeirri hugmynd
að gefast aldrei upp gagnvart skjólstæðingum. Það er mikil
áskorun fyrir ráðgjafana að skilja viðhorf fanganna, mark-
mið þeirra og hugmyndir um hvernig best sé að ná þeim. Í
ráðgjöfinni er gengið út frá því að öll hegðun sé valkvæð. Í
þessari vinnustofu var einnig sagt frá því að í Noregi hefur
samstarf við fyrirtæki reynst vel til að auðvelda föngum
endurkomu út í samfélagið að afplánun lokinni. Þeir byrja
að vinna einum til þremur mánuðum áður en þeir eru leystir
úr haldi. Þeir vinna samkvæmt samningi sem gerður er milli
aðila og fá sömu laun og aðrir í störfunum. Þetta þykir hafa
heppnast vel en þó á enn eftir að gera markvissar kannanir
á árangri.
S T A Ð A N Á Í S L A N d I
Loks er rétt að geta fréttar úr fangelsum á Íslandi: „Enn eitt
aðsóknarmetið að menntun í fangelsum var slegið á skóla-
árinu 2013-2014. Alls innrituðust í nám á Litla-Hrauni og
Sogni 68 nemendur á haustönn 2013. Þar af voru fjórir í
háskólanámi, en hinir 64 voru skráðir í nám á vegum Fjöl-
brautaskóla Suðurlandsá Selfossi (FSu). Á vorönn 2014 voru
samtals 70 nemendur innritaðir í nám; fjórir í háskólanám, 65
í nám á vegum FSu og einn í nám á vegum Menntaskólans í
Kópavogi (MK).“4
U M H Ö F U N d A N A
Halla Valgeirsdóttir er sérfræðingur hjá Fræðslumiðstöð
atvinnulífsins. Helstu verkefni hennar tengjast námsskrár-
skrifum. Hún var áður fræðslustjóri hjá Leikskólum Reykja-
víkurborgar. Halla hefur lokið M.Ed.-prófi í menntunarfræði
með áherslu á fræðslustarf með fullorðnum frá Háskóla
Íslands og BA-prófi í félagsfræði frá sama skóla.
Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir er framkvæmdastjóri
Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Hún hefur B.A.-próf í sál-
fræði, kennsluréttindi frá HÍ, M.Ed.-próf í kennslufræðum frá
Harvard-háskóla í Bandaríkjunum og framhaldsmenntun í
fullorðinsfræðslu frá Háskólanum í Linköping í Svíþjóð. Ingi-
björg hefur unnið við fullorðinsfræðslu frá 1985 við stjórnun,
kennslu og skipulagningu, m.a. hjá Menningar- og fræðslu-
sambandi alþýðu og Tómstundaskólanum. Hún hefur einnig
tekið þátt í bæði evrópskum og norrænum samstarfsverk-
efnum á sviði fullorðinsfræðslu og starfsmenntunar.
4 Sótt 15.09.2014 af http://www.fangelsi.is/frettir/nr/344.
Ljósm.: Per Tharne Direktoratet for Kriminalforsorgen i Danmark.