Gátt - 2014, Page 98

Gátt - 2014, Page 98
98 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4 Í fyrsta tölublaði Gáttar hófum við hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, FA, umræðu um merkingu íðorða á sviði full- orðinsfræðslu. Í öllum tölublöðum höfum við velt fyrir okkur nokkrum hugtökum sem varða viðfangsefni FA. Sem fyrr teljum við þörf fyrir að þau hugtök sem notuð eru í umræðu um fræðslumál fullorðinna, séu skýrt skilgreind. Umfjöllun um slík hugtök hefur því verið fastur þáttur hér í ársritinu Gátt, með það að markmiði að koma af stað umræðum og ná samkomulagi um heppilega og samræmda notkun þeirra íðorða sem notuð eru um hugtökin. Í dag eru hugtökin að nálgast áttunda tuginn sem við höfum varpað fram skil- greiningum á. FA gegnir því hlutverki að vera vettvangur samstarfs og umræðu um fullorðinsfræðslu og kennslufræði fullorðinna. Innan FA hefur verið starfandi hópur sérfræðinga sem veltir fyrir sér heppilegri íðorðanotkun og prófar sig áfram með ólík íðorð. Þar sem umræða um hugtökin hefur ekki þótt hafa komist á nægilegt flug, ákváðum við snemma á árinu 2009 að setja á laggirnar svokallaðan hugtakahóp og bjóða til samstarfs sérfræðingum frá öllum helstu stofnunum sem koma að málefninu. Hópnum er ætlað að skilgreina hugtök sem varða nám og menntun fullorðinna. Eins og fram kom í Gátt 2009 ákvað hópurinn að beita sér fyrir þýðingu á orða- skrá um evrópska menntastefnu og fékk styrk frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu til verksins. Elísabet Gunnars- dóttir var ráðin sem þýðandi og vann hópurinn með henni. Verkinu var skilað til ráðuneytisins í október 2009. Mennta- og menningarmálaráðuneytið sendi listann til Starfsmennta- stofnunar Evrópu, CEDEFOP, og er hann nú aðgengilegur á vef stofnunarinnar ásamt listum á 13 öðrum tungumálum, þar af tveimur norrænum, norsku og sænsku. Þá hefur orða- listinn verið færður inn í orðabanka Íslenskrar málstöðvar (www.ordabanki.hi.is) og einnig verður hægt að sækja hann í heild á PDF-formi á vef Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum (www.arnastofnun.is). Í ellefta tölublaði Gáttar höfum við ákveðið að líta til hugtaka sem tengjast starfsmenntun og vinnustaðanámi. Eins og áður eru sett fram ensk íðorð og tillögur að íslenskum þýðingum og skilgreiningum. Enn eru öll íðorðin af CEDEFOP- listanum en hann er einkum ætlaður fræðimönnum og öðrum sem fást við menntun og mótun menntastefnu. Listinn er ekki tæmandi skrá hugtaka sem sérfræðingar nota, heldur er honum ætlað að taka til lykilhugtaka sem nauðsynleg eru til þess að bera skynbragð á menntun og þjálfun í Evrópu. Við í ritstjórn Gáttar erum okkur meðvituð um að allri hugtakaumfjöllun þarf að fylgja eftir með því að fá áhuga- sama til að tjá sig um skilgreiningarnar og gera í kjölfarið úrbætur. Því bjóðum við öllum þeim sem áhuga hafa á að senda okkur athugasemdir við skilgreiningarnar (sigrunkri (hjá) frae.is). ritstjórN H V A Ð Á T T U V I Ð ?
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Gátt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.