Gátt - 2014, Blaðsíða 98
98
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
Í fyrsta tölublaði Gáttar hófum við hjá Fræðslumiðstöð
atvinnulífsins, FA, umræðu um merkingu íðorða á sviði full-
orðinsfræðslu. Í öllum tölublöðum höfum við velt fyrir okkur
nokkrum hugtökum sem varða viðfangsefni FA. Sem fyrr
teljum við þörf fyrir að þau hugtök sem notuð eru í umræðu
um fræðslumál fullorðinna, séu skýrt skilgreind. Umfjöllun
um slík hugtök hefur því verið fastur þáttur hér í ársritinu
Gátt, með það að markmiði að koma af stað umræðum og
ná samkomulagi um heppilega og samræmda notkun þeirra
íðorða sem notuð eru um hugtökin. Í dag eru hugtökin að
nálgast áttunda tuginn sem við höfum varpað fram skil-
greiningum á.
FA gegnir því hlutverki að vera vettvangur samstarfs og
umræðu um fullorðinsfræðslu og kennslufræði fullorðinna.
Innan FA hefur verið starfandi hópur sérfræðinga sem veltir
fyrir sér heppilegri íðorðanotkun og prófar sig áfram með
ólík íðorð. Þar sem umræða um hugtökin hefur ekki þótt
hafa komist á nægilegt flug, ákváðum við snemma á árinu
2009 að setja á laggirnar svokallaðan hugtakahóp og bjóða
til samstarfs sérfræðingum frá öllum helstu stofnunum sem
koma að málefninu. Hópnum er ætlað að skilgreina hugtök
sem varða nám og menntun fullorðinna. Eins og fram kom í
Gátt 2009 ákvað hópurinn að beita sér fyrir þýðingu á orða-
skrá um evrópska menntastefnu og fékk styrk frá mennta- og
menningarmálaráðuneytinu til verksins. Elísabet Gunnars-
dóttir var ráðin sem þýðandi og vann hópurinn með henni.
Verkinu var skilað til ráðuneytisins í október 2009. Mennta-
og menningarmálaráðuneytið sendi listann til Starfsmennta-
stofnunar Evrópu, CEDEFOP, og er hann nú aðgengilegur á
vef stofnunarinnar ásamt listum á 13 öðrum tungumálum,
þar af tveimur norrænum, norsku og sænsku. Þá hefur orða-
listinn verið færður inn í orðabanka Íslenskrar málstöðvar
(www.ordabanki.hi.is) og einnig verður hægt að sækja hann
í heild á PDF-formi á vef Stofnunar Árna Magnússonar í
íslenskum fræðum (www.arnastofnun.is).
Í ellefta tölublaði Gáttar höfum við ákveðið að líta til
hugtaka sem tengjast starfsmenntun og vinnustaðanámi.
Eins og áður eru sett fram ensk íðorð og tillögur að íslenskum
þýðingum og skilgreiningum. Enn eru öll íðorðin af CEDEFOP-
listanum en hann er einkum ætlaður fræðimönnum og öðrum
sem fást við menntun og mótun menntastefnu. Listinn er
ekki tæmandi skrá hugtaka sem sérfræðingar nota, heldur
er honum ætlað að taka til lykilhugtaka sem nauðsynleg eru
til þess að bera skynbragð á menntun og þjálfun í Evrópu.
Við í ritstjórn Gáttar erum okkur meðvituð um að allri
hugtakaumfjöllun þarf að fylgja eftir með því að fá áhuga-
sama til að tjá sig um skilgreiningarnar og gera í kjölfarið
úrbætur. Því bjóðum við öllum þeim sem áhuga hafa á að
senda okkur athugasemdir við skilgreiningarnar (sigrunkri
(hjá) frae.is).
ritstjórN
H V A Ð Á T T U V I Ð ?