Gátt - 2014, Síða 101

Gátt - 2014, Síða 101
101 F r Æ Ð s L U M i Ð s t Ö Ð A t V i N N U L Í F s i N s g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4 ú T T e K T Á F R A M H A L d S F R Æ Ð S L U - K e R F I N U Árið 2013 fól mennta- menningarmálaráðuneytið Capacent að gera úttekt á framhaldsfræðslukerfinu, hlutverki þess, verkaskiptingu og samstarfi FA, Fræðslusjóðs, fræðsluaðila, annarra hagsmunaaðila og ráðuneytisins. Auk úttektarinnar var gerð þátttakendakönnun meðal þeirra sem sótt hafa vott- aðar námsleiðir, náms- og starfsráðgjöf og raunfærnimat á árunum 2010-12. Helstu niðurstöður úttektarinnar benda til að starfið í framhaldsfræðslu hafi náð markmiðum laga um framhaldsfræðslu og fjármagn sé notað með skilvirkum hætti. Í þátttakendakönnuninni kom fram mikil ánægja með starfið. Þannig sögðu 80% þeirra sem sóttu vottaðar náms- leiðir að námið hafi haft jákvæð eða mjög jákvæð áhrif á sjálfstraust þeirra, um 75% segja námið hafa haft jákvæð eða mjög jákvæð áhrif á líf þeirra, um 44% hafa fengið námsleiðina metna inn í annað nám, 43% eru áfram í sama starfi, um 15% hafa fengið launahækkun og um 11% hafa fengið aukna ábyrgð. 58% segja náms- og starfsráðgjöfina hafa nýst vel eða mjög vel. 43,5% hafa farið í nám eftir náms- og starfsráð- gjöfina og tæp 18% hafa í hyggju að fara í nám. 49% telja líklegt eða mjög líklegt að þeir leiti aftur til náms- og starfs- ráðgjafa. Rúm 70% telja náms- og starfsráðgjöfina hafa haft jákvæð eða mjög jákvæð áhrif á líf þeirra. Í raunfærnimati segja 87% svarenda það skipta miklu eða mjög miklu máli að fá einingarnar metnar í framhalds- skóla, 79% telja hlutverk náms- og starfsráðgjafa í ferlinu mikilvægt eða mjög mikilvægt. Um 60% töldu frekar eða mjög auðvelt að sýna fram á færni sína í matsviðtölum, rúmlega 60% hafa farið í nám eftir raunfærnimat og 15% til viðbótar hafa það í hyggju, 90% segja námið ganga vel eða mjög vel. 64% svarenda eru enn í sama starfi. N Á M S S K R Á R o G N Á M S L ý S I N G A R Á seinni helmingi ársins 2013 var lokið við vinnu við Viðmið um gerð námsskráa í framhaldsfræðslu á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Nýr ferill vegna vottunar námsskráa hefur þó ekki verið mótaður og því hafa náms- skrár fengið tímabundna vottun. Í upphafi árs 2014 fengu tvær nýjar námsskrár vottun mennta- og menningarmálaráðuneytisins til ársloka: Náms- skráin Að lesa og skrifa á íslensku er ætluð fólki af erlendum uppruna sem náð hefur 20 ára aldri, glímir við ólæsi, en hefur hug á að læra eða þjálfa lestur og skrift á íslensku. Námsskráin Verkfærni í framleiðslu I er ætluð fólki á vinnu- markaði, sem starfar við málm- og tæknigreinar, hefur náð 20 ára aldri og hefur stutta formlega skólagöngu að baki. Þá var unnið að tveimur nýjum námsskrám sem einnig hafa fengið tímabundna vottun ráðuneytisins. Annars vegar er Árið 2014 er 12. starfsár Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA) og fjórða ár starfseminnar sem byggt er á lögum um framhaldsfræðslu nr. 27/2010. Samkvæmt lögunum er markhópur FA fullorðið fólk á vinnumarkaði sem ekki hefur lokið formlegri menntun á framhaldsskóla- stigi. Markmið FA er að veita þessu fólki tækifæri til að afla sér menntunar eða bæta stöðu sína á vinnumarkaði. Á grundvelli laganna er í gildi þjónustusamningur við mennta- og menningarmálaráðuneytið. FA sinnir markhópnum ekki beint heldur í gegnum samstarfs- aðila sína, sem eru fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar innan KVASIS, í iðngreinum og á vegum opinbera vinnumarkaðarins, alls 14 fræðsluaðilar. Auk þeirra verkefna sem lögin og þjónustusamningurinn kveða á um þá vistar FA einnig fulltrúa í Norræna tengslanetinu um nám fullorðinna sem kostað er af Norrænu ráðherranefndinni, og vinnur að ýmsum sam- starfsverkefnum, sem tengjast viðfangsefnum FA, en eru fjármögnuð með styrkjum. Hér verður stiklað á stóru í starfsemi FA árið 2014. iNgiBjÖrg ELsA gUÐMUNdsdóttir F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Gátt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.