Gátt - 2014, Page 103
103
F r Æ Ð s L U M i Ð s t Ö Ð A t V i N N U L Í F s i N s
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
• Greining á hæfnikröfum til starfsþjálfa á vinnustöðum
og hönnun á tilraunanámskeiði í framhaldi af því í
samstarfi við VR, SGS og IÐUNA fræðslusetur. Styrkt
af mennta- og menningarmálaráðuneytinu
• Evrópskt samstarfsverkefni til þróunar á kennslufræði
í grunnleikni, European Basic Skills Network (EBSN).
• Grundtvigverkefni sem gengur út á að kanna hvort og
hvernig aðferðafræði markþjálfunar (coaching) getur
nýst til að efla leiðbeinendur í fullorðinsfræðslu í starfi
sínu.
• Leonardóverkefni þar sem er unnið að því greina
námsþarfir, hanna og tilraunakenna sérstakt nám-
skeið fyrir starfsþjálfa í verslunum.
R A U N F Æ R N I M A T
Eftir því sem störfum og námsleiðum fjölgar þar sem boðið
er upp á raunfærnimat og fleiri ljúka raunfærnimati verður
grunnurinn undir það styrkari. Niðurstöður raunfærnimats
eru teknar gildar á vinnumarkaði og í framhaldsskólum. Við
árslok 2014 er búið að opna fyrir raunfærnimat í 46 greinum,
í 43 tilvikum er metið á móti gildandi námsskrá í framhalds-
skóla en í 3 tilvikum á móti viðmiðum atvinnulífs án teng-
ingar við námsskrá.
Á síðustu árum hefur áhersla FA í þróun raunfærnimats
verið á greinar sem ekki falla undir iðngreinar.
Frá árinu 2007 og fram á mitt ár 2014 hafa 2.365 ein-
staklingar lokið raunfærnimati. Alls hafa um 1.636 skólaár
verið metin og er þá miðað við að meðaltalsfjöldi eininga sé
35 á hverju skólaári. Meðalaldur þátttakenda er 40,2 ár og
í nær öllum tilvikum er um að ræða einstaklinga sem hafa
byrjað í framhaldsskóla en ekki lokið námi
Á árinu 2013 luku 369 raunfærnimati og meðalfjöldi
staðinna eininga fyrir hvern þátttakenda var 26. Til viðbótar
luku síðan 36 einstaklingar raunfærnimati í tengslum við IPA
verkefnið sem áður er getið um. Heildarfjöldi einstaklinga í
raunfærnimati á árinu 2013 var 405, hlutfall karla um 79%
og kvenna um 21%.
Í apríl 2014 voru birtar niðurstöður úttektar Mennta- og
menningarmálaráðuneytisins á framhaldsfræðslukerfinu.
Hluti þeirrar úttektar var að leita svara hjá einstaklingum
sem lokið hafa raunfærnimati um áhrif og árangur þess.
Leitað var til 751 einstaklinga (Capacent) og af þeim svöruðu
446, eða 59.4%. Meðal annars kom fram að 61,8% höfðu
lokið eða voru í námi eftir að raunfærnimati lauk og 13.8%
höfðu í hyggju að fara í nám. Þegar var spurt um hvernig
námið gengi eða hefði gengið svöruðu 90% því að námið
gengi mjög vel eða vel. Yfirgnæfandi meirihluti svarenda
töldu niðurstöður raunfærnimatsins sanngjarnar og hjá hluta
af svarendum hafði ábyrgð í starfi aukist.
N Á M S - o G S T A R F S R Á Ð G j Ö F
Eitt meginverkefna FA allt frá stofnun hefur verið þróun
aðferða í náms- og starfsráðgjöf. Þá hafa náms- og starfs-
ráðgjafar gegnt mikilvægu hlutverki í öflun upplýsinga um
markhópinn. Samtals eru um 23 til 25 ráðgjafar hjá 13
samstarfsaðilum í dag. Þeir sinna m.a. kynningarfundum
á þjónustunni á vinnustöðum og öðrum vettvangi þar sem
markhópa framhaldsfræðslulaga er að finna, veita ein-
staklingsviðtöl, hópráðgjöf, taka þátt í virkniaðgerðum fyrir
atvinnuleitendur, hafa umsjón með verkefnum í raunfærni-
mati og þróun aðferðafræði í samstarfi við FA.
FA heldur utan um samstarfsnet náms- og starfsráðgjafa
með það að markmiði að auka sérfræðiþekkingu í náms- og
starfsráðgjöf innan framhaldsfræðslunnar. Haldnir eru 2-3
samráðsfundir á hverju ári þar sem unnið er sameiginlega
að verkefnum sem stuðla að auknum gæðum og árangri
þjónustunnar í þágu markhópsins.
G Æ Ð I F R Æ Ð S L U S T A R F S o G
R Á Ð G j A F A R H j Á V o T T U Ð U M
F R Æ Ð S L U A Ð I L U M
FA hefur frá upphafi unnið að því að efla gæði hjá fræðslu-
aðilum með þróun gæðaviðmiða sem unnin voru í samstarfi
og samráði við samstarfsaðila. Árið 2011 fékk FA vottunar-
stofuna British Standards Institution á Íslandi (BSI) til liðs við
sig um gæðavottunarúttektir er snúa að kennslu og nám-
skeiðahaldi. Í fyrstu var samstarfsaðilum FA gefinn kostur
á að sækja um gæðavottun og fengu fyrstu miðstöðvarnar
EQM vottun árið 2012. Í janúar 2013 var staðan þannig að
þrettán fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar höfðu staðist
gæðaúttekt og hlotið vottun skv. EQM gæðamerkinu. Í sept-
ember 2013 fékk fyrsti fræðsluaðilinn utan samstarfsnets
FA EQM gæðavottun og um mitt ár 2014 höfðu tveir aðrir
fræðsluaðilar bæst við. Alls eru því 16 íslenskir fræðsluaðilar
með EQM vottun frá FA. FA hefur staðið fyrir þróun gæða-
viðmiða í náms- og starfsráðgjöf fyrir fullorðna í samvinnu
við náms- og starfsráðgjafa sem starfa hjá samstarfsaðilum