Gátt - 2014, Qupperneq 107
107
F r Æ Ð s L U M i Ð s t Ö Ð A t V i N N U L Í F s i N s
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
V o T T A Ð A R N Á M S L e I Ð I R
Samstarfsaðilar Fræðslusjóðs við framkvæmd á vottuðum
námsleiðum á árinu 2013 voru 13 símenntunarmiðstöðvar.
Vottað nám er skilgreint sem nám samkvæmt námsleiðum
sem hafa verið sérhannaðar af FA fyrir fólk á vinnumarkaði
sem ekki hefur lokið framhaldsskóla og metnar hafa verið til
eininga á framhaldsskólastigi og annað nám sem Fræðslu-
sjóður viðurkennir.
Fjöldi þátttakenda á árinu 2013 í vottuðum námsleiðum,
sem Fræðslusjóður fjármagnaði, var 2.615 í 215 hópum. Um
64% þátttakenda eru af landsbyggðinni en 36% sóttu námið
á höfuðborgarsvæðinu. Þátttakendum hjá sjö símenntunarmið-
stöðvum fjölgar á milli ára á meðan það er fækkun hjá sex. Í
heild fækkaði þátttakendum á milli áranna 2012 og 2013 úr
2.698 í 2.615 eða um 3%. Loknum einingum á milli áranna
2012 og 2013 fjölgaði úr 32.761 einingu í 35.726 einingar eða
um 9%. Hlutfallsleg fjölgun eininga umfram fjölgun nemenda
skýrist af því að fleiri nemendur luku lengri námsleiðum en áður.
Fleiri konur en karlar eru þátttakendur í vottuðum náms-
leiðum, á síðustu árum hefur körlum fjölgað nokkuð, árið
2013 var hlutfall þeirra 35% en hlutfall karla var aðeins tæp
20% árið 2008.
Samanburður áranna 2012 og 2013 sýnir að í vottuðu
námi greiddu af Fræðslusjóði fjölgar nemendastundum um
rúmlega 40 þúsund á meðan nemendastundum í vottuðu
námi greiddu af öðrum fækkaði um rúmlega 3 þúsund.
Samanlagt fjölgar nemendastundum í vottuðu námi fyrir
markhóp FA um rúmlega 38 þúsund eins og mynd 2 sýnir.
Framboð á vottuðum námsleiðum í framhaldsfræðslunni
hefur aukist mikið síðasta tæpa áratuginn. Árið 2006 var
fyrsta árið sem vottaðar námsleiðir voru í boði á símenntun-
armiðstöðvum í samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.
Það ár voru 13 mismunandi námsleiðir kenndar, framboðið
hefur aukist hægt og bítandi og árið 2013 voru 28 mismun-
andi vottaðar námsleiðir kenndar.
Á sama tíma og framboð vottaðra námsleiða hefur aukist
hefur samsetning þeirra breyst. Vottuðu námsleiðunum hefur
gjarnan verið skipt upp í þrjá flokka, í fyrsta lagi almennt
nám sem flokka má sem klassískt
bóknám, í öðru lagi er það starfsnám
sem er þá starfstengt nám og í þriðja
lagi nám tengt námserfiðleikum sem
er einkum miðað að nemendum sem
eiga við lestrarerfiðleika að glíma.
Fjölda nemenda í hverjum þessara
flokka má sjá á mynd 3.
Hlutfallslega dreifingu má
sjá á mynd 4, þar sést að hlutfall
nemenda sem sækja námsleiðir
tengdar læsiserfiðleikum hefur
farið lækkandi. Fjöldi og hlutfall
nemenda í almennu námi jókst tals-
vert á árunum 2009 til 2011 en sú fjölgun gekk svo til baka
á árunum 2012 og 2013 þegar nemendum fjölgaði í starfs-
námstengdum námsleiðum.
Dreifing nemenda í námsleiðir segir þó aðeins hálfa sög-
una um skiptingu námsleiðanna í fyrrnefnda flokka. Náms-
leiðir sem falla í flokkinn almennt nám eru í mörgum tilfellum
lengri en námsleiðir sem falla undir starfsnám eða læsiserfið-
leika. Ef hlutfallsleg skipting í flokkana þrjá er skoðuð eftir
fjölda nemendastunda eykst þáttur almenna námsins mikið
eins og sjá má á mynd 5.
FriÐriK hjÖrLEiFssoN
S T A R F S e M I F R Æ Ð S L U S j ó Ð S
Friðrik Hjörleifsson
Mynd 1 – þátttakendur í námstilboðum
símenntunarmiðstöðva 2013, vottað nám, fjármagnað af
Fræðuslusjóði.
Austurbrú
Farskólinn
Framvegis
Fræðslumiðst.Vestfj.
Fræðslunet Suðurlands
IÐAN fræðslusetur
MSS
Mímir-símenntun
Sím. á Vesturlandi
Símey
Starfsmennt
Viska
Þekkingarnet Þingeyinga