Gátt - 2014, Síða 114
114
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA) hefur lengst af tekið þátt
í ýmsum erlendum samstarfsverkefnum, bæði evrópskum
og norrænum. Sem dæmi má nefna verkefnin Vow, Revow,
Recall og Observal sem öll voru styrkt af menntaáætlun
ESB og ýmis verkefni sem hafa notið fjárstyrks frá Norrænu
ráðherranefndinni, svo sem verkefni á sviði raunfærnimats,
náms- og starfsráðgjafar, gæðamála og nýjunga í fullorðins-
fræðslu. Ávinningur af því að taka þátt í verkefnum sem
þessum eru meðal annars nýjar hugmyndir í starfið, upp-
bygging tengslanets á sviði fullorðinsfræðslu og aukin hæfni
starfsmanna FA. Eftirtalin samstarfsverkefni eru um þessar
mundir í vinnslu hjá FA.
Retrain - um færniþróun starfsfólks í verslun.
Styrkt af menntaáætlun ESB, Leonardo da Vinci, tilv.nr:
Leonardo TOI: 13-FI-160-LEO05-2630.
Rannsóknarsetur verslunarinnar og Háskólinn á Bifröst
leiða verkefnið og lýkur því árið 2015.
Heimasíða og frekari upplýsingar má finna á www.
retrain.is.
Umsjónarmaður er Guðfinna Harðardóttir.
Worklife Guidance – um hagnýtingu á aðferðafræði ráð-
gjafar, raunfærnimats og mannauðsstjórnunar til að greina
fræðsluþarfir starfsmanna. Markmið verkefnisins er meðal
annars að útbúa verkfærakistu fyrir ráðgjafa til að nota á
vinnustöðum við greiningu á fræðsluþörfum starfsfólks.
Styrkt af menntaáætlun ESB, Erasmusplus, tilv.nr: KA2:
2014-1-IS01-KA204-000181.
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins leiðir verkefnið og lýkur
því árið 2016.
Umsjónarmaður er Arnheiður Gígja Guðmundsdóttir.
Quality assurance within adult education - um endur-
skoðun og endurnýjun á EQM gæðaviðmiðum og gæðaút-
tektum fyrir fræðsluaðila utan formlega skólakerfisins.
Verkefnið er styrkt af menntaáætlun Norræna ráðherra-
ráðsins, Nordplus, tilv.nr: NPAD-2014/10035.
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins leiðir verkefnið og lýkur
því árið 2016.
Frekari upplýsingar má finna á www.europeanquality-
mark.org og á vef FA http://www.frae.is/gaedavottun/
Umsjónarmaður er Guðfinna Harðardóttir.
Open badges for adult educators - um þróun rafrænna
viðurkenninga fyrir aðila í fullorðinsfræðslu. Markmiðið er að
auka notkun upplýsingatækni og samfélagsmiðla í fullorðins-
fræðslu og að efla enn frekar umræðu um fullorðinsfræðslu
á netinu. Með viðurkenningunni gefst aðilum í fullorðins-
fræðslu færi á að sýna fram á þátttöku og hæfni í umræðu
um fullorðinsfræðslu og notkun rafrænna miðla.
Verkefnið er styrkt af menntaáætlun Norræna ráðherra-
ráðsins, Nordplus, tilv.nr: NPAD-2014/10169.
Folkeuniversitetet í Gautaborg, Svíþjóð leiðir verkefnið
og lýkur því árið 2016.
Frekari upplýsingar má finna á www.openbadge.wor-
dpress.com. Eins er hægt að taka þátt í umræðunni með því
að gerast meðlimur í Facebook-hópnum Open badges for
adult educators og á Twitter undir krossmerkinu #folkbadge.
Umsjónarmaður er Guðfinna Harðardóttir.
Kompetenceprofiler og kompetenceudvikling for de,
der arbejder med validering – en kortlægning - um
þróun færni matsaðila í raunfærnimati.
Verkefnið er styrkt af menntaáætlun Norræna ráðherra-
ráðsins, Nordplus, tilv.nr: NPAD-2014/10044.
University College í Danmörku leiðir verkefnið og lýkur
því árið 2016.
Umsjónarmaður er Haukur Harðarson.
ritstjórN
e R L e N d S A M S T A R F S V e R K e F N I