Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Síða 18
í rúmt 21 ár. Allan þann tíma veitti hann flokknum
forystu, með frábærri hæfni, lægni og lipurð, og vann
sér að verðleikum og í ríkum mæli ástsæld og virð-
ingu margra samstarfsmanna sinna. Þótt hann ætti, eins
og stundum vill verða, við þau örlög að búa, að margir
innan samtakanna snérust gegn honum og þá einkum
fyrir áhrif frá öðrum flokki og gerðu honum síðustu
ævistundirnar ömurlegar.
En saga flokksins og saga þjóðarinnar mun geyma
nafn hans í logaletri, og ævistarf hans í þágu alþýðu-
hreyfingarinnar var fyrirmynd og til eftirbreytni fyrir
alla þá, er til þekkja, og á að vera ungum kröftum til
fullrar fyrirmyndar.
Hér uppi hangir málverk af Jóni Baldvinssyni, og til
minningar um sjötugustu ártíð hans vil ég í nafni Al-
þýðuflokksins leggja lítinn sveig að málverki hans, með
innilegu þakklæti og djúpri virðingu þeirra samtaka,
sem hann fórnaði starfsorku sinni, og ég vil segja lífi
sínu og heilsu.
Eg sagði það áðan, og endurtek það nú, að þetta þing,
eins og oft áður, ber órækan blæ æskunnar í samfélagi
þeirra, sem fullorðnir eru og jafnvel all mjög við aldur.
Það ber og nokkurn svip þeirra manna, er skipuðu sér í
raðirnar fyrir aldarfjórðungi síðan og áframhaldandi.
Og nú einmitt fyrir fáum dögum síðan, hélt elzta æsku-
lýðsfélag jafnaðarmanna hér á landi, Félag ungra jafn-
aðarmanna í Reykjavík — F. U. J. — hátíðlegt 25 ára
afmæli sitt. Frá þeim félagssamtökum hefir flokkurinn
fengið marga ágæta starfskrafta, sem sumir hverjir eru
nú komnir í raðir hinna fullorðnu, en aðrir eru æskan
sjálf, áhugasöm, þróttmikil og bjartsýn, reiðubúin til
þess að leggja á brattann, í upphafi á eftir okkur, sem
16