Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Qupperneq 50
Þá flytur þingflokkurinn í þriðja sinn hið stórmerka
frumvarp um atvinnustofnun ríkisins. Fylgir því ítar-
leg greinargerð og rökstuðningur. En með frumvarpinu
er það ætlunin, að ríkið geri ráðstafanir til þess að
tryggja fulla atvinnu í landinu. Verkefni atvinnu-
stofnunarinnar er ætlazt til að verði þessi: 1) Skráning
vinnuafls þjóðarinnar og samning launaskýrslna, 2)
atvinnuleysisskráning, 3) vinnumiðlun, 4) leiðbein-
ingar um stöðuval, 5) vinnuþjálfun, 6) öryrkjavinna,
7) unglingavinna, 8) ráðstöfun atvinnubótafjár. Er hér
vissulega um stórkostlega merkilegt mál að ræða. En
ekki hefir orðið unnt til þessa að opna augu stjórnar-
flokkanna fyrir nytsemi þess og nauðsyn. Þetta eru
helztu frumvörp Alþýðuflokksins á félagsmálasviðinu,
og marka þau skýra og ákveðna stefnu flokksins í þess-
um málum.
Eins og rakið hefir verið hér á undan, er hin ört
vaxandi dýrtíð váleg kjaraskerðing fyrir alþýðuna.
Ein af ástæðunum til þess, að svo hefir farið, er það, að
ríkissjórnin hefir afnumið svo að segja allar hömlur
á verðlagi, sem oft hefir leitt til óheyrilegs okurs. Þess
vegna hefir þingflokkurinn flutt frumvarp um verð-
iagseftirlit, þar sem ákveðið er að taka upp opinbert
verðlagseftirlit að nýju. Er það vissulega hið mesta
nauðsynjamál. En stjórnarflokkarnir hafa í sameiningu
risið öndverðir gegn þessari réttarbót.
Skattalöggjöfin er orðin ærið úrelt og óréttlát, og
stjórnarflokkarnir hafa virzt um það hugsa fyrst og
fremst, að auka skattana og tollana, er hart koma niður
á almenningi. Þessi frumvörp eru:
Frumvarp um hækkun á persónufrádrætti við skatta-
álagningu.
48