Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Page 57

Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Page 57
herða sóknina. Annað er ekki sæmilegt góðum málstað. Og þeir, sem á hann trúa, örvænta ekki, heldur láta þeir örðugleikana hleypa sér kappi í kinn og verða hvatning til nýrra og öflugri áaka. En aukakosningarnar og úrslit þeirra leiða hugann mjög að hinni úreltu og óréttlátu kjördæmaskipun. Nú er svo komið, að Alþýðuflokkurinn á aðeins 6 fulltrúa á Alþingi, en fékk við síðustu kosningar rétt um 12000 atkvæði. Um 2000 atkvæði standa því að baki hverjum fulltrúa hans á þingi. Að baki hverjum af hinum 18 fulltrúum Framsóknarflokksins á þingi standa tæpir 1000 kjósendur, eða helmingi færri en hvað Alþýðu- flokkinn snertir. Bak við hvern þingmann kommúnista eru til jafnaðar rúmir 1500 kjósendur. Kemur það því greinilega í ljós að Alþýðuflokkurinn er lang mest af- skiptur um fulltrúafjölda. Hljóta þessar staðreyndir mjög að skera í augu, og verður vart unað til langframa við þetta óréttláta skipulag. En því miður er helzt útlit fyrir, að stjórnarflokkarnir hugsi frekast til þess að bæta gráu ofan á svart með ennþá ranglátara skipulagi þessara mála. Þarf Alþýðuflokkurinn þar vel að standa á verði og beita öllu afli sínu, og ég vil jafnvel segja allt að því öllum ráðum, til þess að hindra þar skemmdarverk, en hinsvegar keppa að því að fá sem fyllsta leiðréttingu þessara mála. Forsetakosningamar. Ég' gat þess í setningarræðunni, að ég myndi í þessari skýrslu minnast nokkuð nánar á forsetakosningarnar, aðdraganda þeirra, úrslit og áhrif.. Ég mun því víkja nokkuð að þessum merkilega viðburði. Það var alþjóð kunnugt, að hinn ástsæli forseti, 55

x

Þingtíðindi Alþýðuflokksins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þingtíðindi Alþýðuflokksins
https://timarit.is/publication/1889

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.