Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Side 61

Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Side 61
við forsetakjör. Miðstjórnin felur nefnd þeirri, er kosin var á síðasta fundi að stuðla að því, eftir því sem frekast er unnt, og í samráði við Asgeir Asgeirs- son, að fá sem víðtækastan stuðning frá lýðræðis- flokkunum með kjöri hans í forsetastöðuna.“ I miðstjóm Framsóknar- og Sjálfstæðisflokksins voru knúðar fram meirihlutasamþykktir með framboði séra Bjarna Jónssonar, en menn úr báðum þessum flokkum lýstu því eindregið og afdráttarlaust yfir, að þeir teldu sig alls ekki bundna og myndu eftir sem áður fylgja framboði Asgeirs Asgeirssonar. Miðstjórn kommúnista mun hafa ákveðið, eftir þauf og með ágreiningi, að flokkurinn hefði engin skipti af forsetakjörinu og fyrirskipaði flokksmönnum að sitja hjá við kosningarnar. Samtök nokkurra manna ákváðu að hafa Gísla Sveinsson fyrrv. sendiherra í kjöri. Og síðan hófst hin eftirminnilega og óvenju harða kosningabarátta. Stjórnarflokkarnir settu flokksvél sína í fullan gang, og flest blöð þeirra hömuðust af öllum mætti með framboði séra Bjarna Jónssonar. Ráð- herrarnir fóru út um allt land og lögðu sig alla fram, einkum þó formenn stjórnarflokkanna og forsætisráð- herra. Var beitt allri þeirri málafylgju, sem unnt var yfir að ráða, óspart beitt blíðmælum, og einnig jafn- vel hótunum, ef því var að skipta. Lögðu ráðherrarnir svo fast sem þeir gátu að flokksmönnum sínum, bæði með góðu og illu, að fylgja nú flokksforystunni. Var óspart, í ræðu og riti, á fundum og í einkasamtölum, veitzt að Ásgeiri Ásgeirssyni, og því miður oft á miður drengilegan hátt. Var þáttur sumra ráðherranna í þess- um áróðri ekki sem skyldi, og ekki sízt var það óvið- kunnanlegt, að forsætisráðherra, sem var einn af hand- 59

x

Þingtíðindi Alþýðuflokksins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þingtíðindi Alþýðuflokksins
https://timarit.is/publication/1889

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.