Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Side 64

Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Side 64
hvernig fylgi stjórnarflokkanna skiptist. Eins og áður segir munu svo að segja allir Alþýðuflokksmenn hafa kosið Ásgeir Ásgeirsson og mjög verulegur hluti úr hinum flokkunum. Þó er öll ástæða til þess að ætla, að meiri hluti kommúnistakjósenda í landinu, hafi ekki kosið Ásgeir Ásgeirsson, heldur séra Bjarna Jónsson, því að svo mjög lögðu fremstu forystumenn flokksins sig fram í því skyni, og meginhluti af liði þeirra lýtur yfir- leitt þeirra sterku leiðsögn eða skipunum. Stjórnar- flokkarnir skiptust mjög rækilega, en þó nokkuð mis- jafnt í kjördæmunum. En hverjir réðu úrslitunum og kusu fyrst og fremst Ásgeir Ásgeirsson? Það voru menn úr öllum flokkum, næstum allur Alþýðuflokkurinn stóð þar óskiptur. Það voru fyrst og fremst verkamenn, sjómenn og iðnaðar- menn úr öllum flokkum, verulegur hluti bænda og mið- stéttafólks auk allmargra embættis- og kaupsýslumanna. En fyrst og fremst var það alþýðan í landinu, er stóð að þessari kosningu, alveg án tillits til flokkaskiptingar. Það var hreyfing fólksins sjálfs, risin upp þess á meðal og borin uppi af ákveðnum skoðunum og áhuga. Og þetta fólk lét ekki segja sér fyrir verkum af stjórnum flokka sinna, en fór alveg sínu fram. Það var mjög eftirtektarvert að veita þessu fyrirbæri athygli. Það bar órækan vott um dómgreind fólksins, skoðanafestu þess og sjálfstæði. Þessvegna er forsetakosningin athyglis- verðasti viðburður í opinberu lífi og stjórnmálum síð- ustu tíma. En þá mætti að lokum spyrja, hvort forsetakjörið muni valda nokkrum varanlegum straumhvörfum eða áhrif hafa á stjórnmál í náinni framtíð. Þessu er ekki unnt að svara með nokkurri vissu. Eitt er þó áreiðan- 62

x

Þingtíðindi Alþýðuflokksins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þingtíðindi Alþýðuflokksins
https://timarit.is/publication/1889

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.