Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Side 67

Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Side 67
Er þvi mjög nauðsynlegt að leggja allt kapp á að ná eyrum og augum þjóðarinnar og benda henni á með skýrum rökum, að breyta þurfi um stjórnarhætti. Eg efast ekki um, að innan andstæðingaflokka okkar er fjöldi fólks, sem er mjög óánægður, fólk sem að réttu lagi á samleið með flokki okkar. Spurningin er aðeins sú, hvort það getur losnað úr viðjum fyrri flokksbanda og tekið höndum saman við Alþýðuflokkinn. Það er víst og áreiðanlegt, að flokkur okkar getur átt samleið með mörgum einstaklingum, hópum, samtök- um og jafnvel flokkum, er byggja vilja starfsemi sína á grundvelli lýðræðis og hefðu skilning og mátt til þess að taka útrétta hendi okkar. Og það er áreiðanlega það mikilsverða hlutverk, er bíður Alþýðuflokksins í náinni framtíð. Ég hefi þá trú, að flokkurinn muni verða fús til þess, og' jafnvel telja það skyldu sína, að kosta kapps um að ná samstarfi við þau lýðræðissinnuðu umbóta- öfl, er vildu og gætu átt samleið með flokki okkar. Þar kemur að sjálfsögðu aldrei til mála samvinna við ein- ræðisöfl kommúnista, né þeirra fjarlægu og landsskað- legu sjónarmið í utanríkismálum. En verði íhaldsöflin samt svo sterk og samstæð, að þau geti áfram ráðið ríkjum í landinu, mun Alþýðuflokkurinn telja það skyldu sína og hlutverk að vera í öflugri andstöðu og þá einnig kosta kapps um að sameina til andróðurs þau lýðræðissinnuðu umbótaöfl, er til þeirrar baráttu vildu ganga. Á þessari stundu verður fátt um það sagt, hvaða líkur myndu vera til þess að brjóta á bak aftur vald þeirra íhaldsafla, er nú spenna greipum sínum um ís- lenzk stjórnmál. En Alþýðuflokkurinn getur þar ekki látið sinn hlut eftir liggja. Ríður þá mikið á að sam- hæfa fylkingar flokksins, hafa náið og g'ott samstarf 65

x

Þingtíðindi Alþýðuflokksins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þingtíðindi Alþýðuflokksins
https://timarit.is/publication/1889

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.