Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Blaðsíða 70
framgang margvíslegra velferðarmála almennings. í
síðustu ríkisstjórn beitti hann sér fyrir því, að atvinna
væri nægileg og komið í veg fyrir gengislækkun og
aukningu dýrtíðar. Með valdatöku þeirrar ríkisstjórnar,
sem nú situr, varð örlagarík breyting. Geigvænlegt
atvinnuleysi hefur haldið innreið sína, og dýrtíð hefur
aldrei fyrr aukizt jafnmikið á jafnskömmum tíma.
Þess vegna verður að skipta um stjórnarstefnu. Úrslit
næstu kosninga verða að tryggja, að tekin verði upp
ný stefna, sem sjái öllum fyrir atvinnu, stöðvi vöxt
dýrtíðar og tryggi öllum stéttum réttmætar tekjur í
samræmi við störf þeirra.
Alþýðuflokkurinn vi!3 gera skýra grein fyrir því,
hvern hann telur eiga að vera kjamann í nýrri stjórnar-
stefnu, sem hafi þetta markmið. Hann leggur því fram
eftirfarandi:
FRAMKVÆMDAÁÆTLUN FYRIR FJÖGUR ÁR.
A. Höfuðmarkmiðið sé að auka hagsæld almennings
og tryggja öllum stöðuga atvinnu.
I. Sjávarútvcgsmál.
1) Komið verði á fót ríkisútgerð nokkurra togara til
atvinnuöryggis og atvinnujöfnunar.
2) Bæjarútgerð togara verði aukin og efld.
3) Stuðlað verði að samvinnurekstri í bátaútveginum,
og kappkostað að leysa vandræði bátaútvegsins með
auknum sparnaði í rekstri og bættum vinnuaðferð-
um bæði við veiðar og vinnslu aflans.
4) Stuðlað verði að byggingu nýrra fiskiðjuvera. Unnið
verði að því, að fyrirtæki þau, sem vinna úr afla
68