Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Síða 72
III. Iðnaðarmál.
1) Haldið verði áfram virkjun orkulinda, vatnsfalla og
jarðhita og' stuðlað að því, að iðnaður fái rafmagn
við sem lægstu verði um land allt.
2) Hraðað verði byggingu sementsverksmiðju.
3) Gefinn verði frjáls, eftir því sem mögulegt er, inn-
flutningur á hráefnum til iðnaðarframleiðslu.
4) Hafður verði hemill á innflutningi á þeim fullunnum
iðnaðarvörum, sem auðvelt er að framleiða í land-
inu.
5) Tollalöggjöfin verði endurskoðuð með það fyrir
augum, að tollarnir verði yfirleitt þeim mun lægri,
sem innflutta varan er minna unnin.
6) Framkvæmd verði út í æsar gildandi löggjöf um
öryggisráðstafanir á vinnustöðvum.
IV. Viðskiptamál.
1) Utanríkisverzlunin sé endurskipulögð í því skyni að
gera hana ódýrari, svo að neytendum sé tryggt sem
lægst verð á innfluttri vöru og framleiðendum sem
hæst verð fyrir útflutta vöru.
2) Innflutningur og útflutningur sumra vörutegunda
sé falinn einkasölum, ef hagkvæmt er að kaupa þær,
selja eða flytja í sem stærstum stíl. Að öðru leyti
sé lögð áherzla á að efla innkaupa- og sölusambönd
útvegsmanna, iðnaðarmanna, samvinnufélaga og
smákaupmanna. Jafnframt verði tryggt, að allir
hlutaðeigendur njóti jafnrar aðstöðu í slíkum sam-
tökum.
3) Samvinnuhreyfingin sé studd til þess að vinna að
lækkuðum dreifingarkostnaði innanlands.
70