Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Síða 81
V erkalýðsmál.
Frá verkalýðsinálanefnd. Framsögumaður Jón Sigurðs-
son.
23. þing Alþýðuflokksins telur það höfuðskilyrði
fyrir heilbrigðri þróun verkalýðssamtakanna, að þar sé
að málum unnið á grundvelli fyllsta lýðræðis og beri
því að vinna ötullega gegn því, að þeir, sem aðhyllast
stefnu einræðis og ofbeldis fái eða hafi þar nokkur völd.
Þingið lítur svo á, að ekki hafi verið hjá því komizt
eins og á stóð, á nýafstöðnu þingi Alþýðusambandsins,
að alþýðuflokksfólk innan verkalýðssamtakanna hafi
samstarf við fólk úr hinum tveim flokkunum, er telja
sig vilja vinna í anda lýðræðis og þingræðis, til þess
að varna því að kommúnistar næðu þar aftur völdum
og aðstöðu til þess að misbeita samtökunum eins og
þeir gerðu á þeim fjórum árum, sem þeir höfðu öll völd.
Hinsvegar ber að líta á þetta samstarf lýðræðissinna
sem tímabundið samstarf, því óeðlileg þróun verður það
að kallast, að nokkur verkalýðsfélög skuli vera undir
stjórn og hlíta forustu íhalds- og framsóknarmanna.
Þingið telur, að markvisst og skipulega verði að því
að vinna, að áhrifa Alþýðuflokksmanna gæti sem mest
innan verkalýðssamtakanna og hvetur því allt flokks-
79