Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Side 84

Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Side 84
námsdeildir við iðnskólana, þeir gerðir að dagskól- um og reknir af ríkinu. 6) Að lögð verði stóraukin áherzla á kennslu þjóð- félagsfræða í skólum landsins og þar fjallað rækilega um réttindi og skyldur þegna í lýðræðisþjóðfélagi. 7) Að námsmönnum verði veitt ívilnun við greiðslu opinberra gjalda. 23. þing Alþýðuflokksins lítur svo á, að rekstur kvik- myndahúsa eigi að vera í höndum sveitarfélaga eða viðurkenndra menningarstofnana, og sé hagnaðinum varið til að efla íslenzka kvikmyndagerð og til menn- ingar- og mannúðarmála. Kvikmyndaeftirlitið í landinu sé betur rækt en nú er. 23. þing Alþýðuflokksins heitir á alla Islendinga að veita öflugan stuðning þeirri hreyfingu, sem risið hefur fyrir byggingu veglegs húss yfir íslenzku handritin, en þeim verður væntanlega skilað heim innan skamms. Þingið telur nauðsynlegt, að flokkurinn haldi áfram söfnun heimilda og gagna varðandi upphaf og sögu alþýðuhreyfingarinnar hér á landi. Þarf að bjarga frá eyðileggingu ýmsum skilríkjum, myndum og gögnum, skrá endurminningar brautryðjenda og safna þessu efni síðan á einn stað. Þingið felur framkvæmdarstjórn flokksins að leita samvinnu við stjórn Alþýðusambandsins um að fá til þess einn eða fleiri menn að annast starf þetta og rita sögu samtakanna. Jafnframt treystir þingið stjórnum flokksfélaga og einstökum flokksmönnum að halda áfram söfnun slíkra sögugagna hver á sínum stað, og hafa nána samvinnu við þann mann eða menn, sem til starfsins veljast. Þingið skorar á miðstjórn flokksins að athuga gaum- 82

x

Þingtíðindi Alþýðuflokksins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þingtíðindi Alþýðuflokksins
https://timarit.is/publication/1889

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.