Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Blaðsíða 87
bandið gefi út tímarit sitt „Vinnuna" í full-
komnara formi en undanfarið. Verði þar veitt
á sögulegum grundvelli fræðsla um störf Alþýðu-
flokksins fyrir launþegasamtökin á liðnum árum
og gerð grein fyrir þeim málum, sem flokkurinn
á hverjum tíma berst fyrir til hagsbóta hinum
vinnandi stéttum.
c. Verða ráðgefandi við ritstjóra Alþýðublaðsins um
verkalýðsmál og útvega greinar og myndir frá
vinnustöðum í Reykjavík og utan af landi og þá
ekki síður frá verksviði kvenna en karla.
d. Sjá til þess, að gefin séu út á vegum flokksins
öðru hvoru upplýsingarit, sérstaklega ætluð
áhug'amannahópum til afnota. Rit þessi mættu
vera í svipuðu formi og „Staðreyndir handa
Alþýðuflokksmönnum", er gefið var út fyrir
nokkrum árum. Sé meginefni þessara rita stofn
að handbók flokksmanna, er gefin sé út eftir því,
sem ástæður leyfa.
e. Sérstök áherzla sé lögð á að ná Iðnnemasambandi
ísland úr höndum kommúnista, og til þess verði
veittur stuðningur ungum iðnnemum, sem að-
hyllast lýðræðislegan sósíalisma, og þeim veitt
nauðsynleg fræðsla í því skyni.
2) Þingið felur stjórn flokksins að beita sér fyrir því,
að stærstu félögunum úti á landi verði útveguð tæki
til aukinnar útbreiðslu- og fræðslustarfsemi, fjöl-
ritarar, kvikmyndir, stálþráðartæki o. fl.
3) Þingið lítur svo á, að heppilegt væri að koma á
föstum bréfaviðskiptum milli félaga flokksins og
einstakra áhugamanna í Reykjavík og úti um land.
4) Þingið telur æskilegt, að sérprentaðar væru ein-
85