Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Side 88
stakar þýSingarmiklar greinar úr aðalblaði flokks-
ins og sendar flokksblöðunum út um land, og létu
þau síðan greinar þessar fylgja blöðunum til kaup-
enda sinna.
5) Þingið skorar á stjórn flokksins að kynna sér ná-
kvæmlega þarfir og áhugamál fólksins um fram-
kvæmdir á hinum ýmsu stöðum á landinu og gera
tillögur á Alþingi um framgang þeirra. Þá þykir
þinginu bera til þess brýna nauðsyn, að^ helztu for-
ystumenn flokksins fari annað veifið út um land,
haldi fundi og ræði við áhuga- og trúnaðarmenn
flokksins.
6) Þingið telur nauðsynlegt, að flokkurinn hafi í þjón-
ustu sinni erindreka, sem ferðist um meðal félag-
anna, örvi starfsemi þeirra og stofni ný félög.
7) Þingið felur miðstjórn að kjósa, þegar eftir flokks-
þing, þrjá menn til þess að hafa á hendi yfirstjórn
kosningabaráttunnar á næsta vori í samráði við
miðstjórn, fulltrúaráð og frambjóðendur. Skal einn
(formaður) hafa heildarumsjón með kosningunum,
annar umsjón með Reykjavík og hinn þriðji utan
Reykjavíkur.
8) Þingið samþykkir, að miðstjórn flokksins skuli halda
reglubundna fundi fyrsta virkan dag annars hvers
mánaðar.
23. þing Alþýðuflokksins skorar eindregið á alla
áhugasama flokksmenn, sem því geta við komið, að
gefa sumarfrí sín á næsta ári til starfa fyrir flokkinn,
fyrir alþingiskosningarnar.
86