Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Side 89

Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Side 89
Ýmsar ályktanir. Frá allsherjarnefnd. Framsögumaður: Hannibal Valdi- marsson. Nefndin hélt einn fund og afgreiddi tillögur. Munu nefndarmenn skipta með sér verkum um framsögu, hinum einstöku tillögum til skýringar. Svohljóðandi tillaga um bindindismál var nefndinni send, og mælir hún með samþykkt hennar. 1) a. Um leið og 23. þing Alþýðuflokksins lýsir fullum stuðningi við bindindissamtökin í landinu, skorar það á þingum flokksins að vinna að því, að sett verði ný og bætt áfengislöggjöf, þar sem fullt tillit sé tekið til sjónarmiða bindindismanna í landinu, enda telur þingið frumvarp það til nýrrar áfengis- löggjafar, sem nú liggur fyrir Alþingi, algerlega óviðunandi og vill, að þingmenn flokksins vinni að falli þess. Þá skorar þingið og á þingmenn flokksins og aðra fulltrúa hans að berjast með fullri einurð gegn því að leyft verði að brugga áfengt öl í landinu. b. Ennfremur samþykkir þing Alþýðuflokksins að skora á þingmenn flokksins að beita sér, á Al- þingi fyrir auknum fjárframlögum ’til bindindis- starfsemi og áfengisvarna. 87

x

Þingtíðindi Alþýðuflokksins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þingtíðindi Alþýðuflokksins
https://timarit.is/publication/1889

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.