Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Qupperneq 91
til samvinnufélagsskapar um rekstur þeirra með
betri hagnýtingu og aukna atvinnu fyrir augum.
5) Þingið telur það höfuðnauðsyn, til þess að skapa
atvinnulífinu sem jafnasta aðstöðu, hvar sem er á
landinu, að lögfest verði jafnaðarverð um land allt
á raforku og olíum, og skorar á Alþingi og ríkis-
stjórn að samþykkja löggjöf um það efni áður en
Alþingi það, sem nú situr, lýkur störfum.
6) Þingið skorar á ríkisstjórnina að rannsaka gaum-
gæfilega, hvort innlend heymjölsframleiðsla í stór-
um stíl geti ekki sparað innflutning fóðurvara að
verulegu leyti og orðið samkeppnisfær um verðlag
við erlendan fóðurbæti.
í þessu sambandi ber að athuga, hvort ekki sé hag-
kvæmt að hagnýta til mjölgerðar, það úrgangsgræn-
meti, sem eyðileggst nú með öllu hjá gróðurhúsa-
eigendum.
7) Þingið telur, að rannsaka beri hið fyrsta, hvort ekki
muni borga sig að setja upp pappírsgerð í öllum
landsfjórðungum með það fyrir augum að nota
rekaviðarmor, spæni, sag, afhögg við byggingar,
pappírsúrgang, tuskur og svo framvegis til pappírs-
og pappagerðar.
Væri slík iðnframleiðsla til mikilla þrifa og hefði
þannig verulegt menningargildi, auk þess sem hún
gæti sparað nokkuð af þeim háu gjaldeyrisupphæð-
um, sem Islendingar verja nú til innkaupa á pappa
og pappírsvörum.
8) Þingið harmar það, að sífelldur dráttur skuli vera
á undirbúningi og framkvæmdum heildarvatnsafls-
virkjana fyrir Austfirði og Vestfirði.
Vatnsskorturinn og hið háa verð á raforku fram-
89