Úrval - 01.03.1965, Side 15

Úrval - 01.03.1965, Side 15
AFl OG ATLANTSHAFIÐ 13 á steinakkerið i stefninu á kænu Als. A1 skildi, við hvað hann átti, og kastaði því yfir i bátinn olckar. Það tók okkur dálítinn timii að koma því aftur í skut og skorða það þar dyggilega. Það var þungt. Þegar við litum upp aftur, voru bátarnir aðeins um 100 metrum undan klöppunum. Yið gátum íund- ið öldusogið við klettana, er þær soguðust til baka og skullu síðan aftur að klöppunum úti við odd- ann á tanganum. Afi tók til að róa aftur af öllum lífs og sálar kröft- um og stefndi nú beint til iiafs. í fyrstu miðaði okkur ekkert áfram. Að lokum tók báturinn til að hreyf- ast ur stað, en svo þegar stríkkaði aftur á tauginni á milli bátanna, varð róðurinn jafnvel enn erfiðari. Mig langaði ósköp mikið til að hjálpa, en ég gat ekkert gert. Hið eina, sem mér kom til hugar að gera, var að hrópa í sífellu: „Þér tekst það, afi! Þér tekst það!“ A1 hjálpaði til með árinni sinni. En þetta var harátta upp á líf og dauða, því að í livert skipti er afi hafði lokið áratogi, rak okkur aft- ur í áltina til ldappanna. Það virt- ust líða margir klukkutímar þangað til öldurnar urðu lengri og ávalari og við vissum, að við vorum nú aftur komnir út á meira dýpi. Svo beygði afi hægt og stefndi nú aftur i áttina til víkurinnar. Þeir, sem vita eitthvað um báta, gera sér grein fyrir því, að hættan er einna mest, þegar öldurnar koma á eftir manni. Þær komu æðandi á eftir okkur, lyftu okkur upp og köst- uðu okkur fram á við. Það er ekki svo mjög hættulegt, ef hægt er að stýra. En það er ekki hægt að stýra kænu, sem er með aðra i eftirdragi í mjög slæmum sjó. Einhvcrn veginn tókst afa að hindra það, að bátinn ræki á hlið undan öldunum. En svo skall skyndilega á okkur geysileg alda, og kæna Als skall aftan á okkar hát. Síðan kom önnur alda, og ég hélt, að nú væri úti mn okkur. Ég gat séð sjóinn fossa inn í kænu Als. Hann jós eins og óður maður. Svo lygndi skyndilega. Slíkt ger- ist stundum i fárviðri. Rétt á eftir allra mestu öldunum koma stundum smáöldur. Afi leit til hafs, og síðan greip hann til ráðs, sem ég skildi alls ekkert í. Hann greip aðra ár- ina báðum höndum og sneri kæn- unni okkar af öllu afli, þangað til hún stefndi til hafs aítur. Ég var þó of ungur til þess að skilja, hvað hann ætlaðist fyrir. En nú er ég minntist þess arna 50 árum síðar, fylltist ég enn hrifningu og undr- un. Þetta var eina ráðið, sem dugði til þess að bjarga lífi okkar. Afi hafði aldrei lent í fárviðri á sjó áður, en það var líkt og einhver eðlisávísun segði honum, hvað til bragðs skyldi taka. Ætti okkur að takast að komast að landi, yrðum við að láta okkur reka þangað aft- ur á bak, og létta kænan okkar varð að „halda í“ við hlaðinn bát Als, og það gat luin aðeins með því að leyfa honum að vera á und- an. „Ég býst við, að okkur ætli að takast þetta, Davy,“ hrópaði afi brosandi. Nú gerði ég mér grein fyrir því, að hann hafði ekki verið viss um, að okkur tækist að sigra.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.