Úrval - 01.03.1965, Page 49

Úrval - 01.03.1965, Page 49
NATHANIEL HAWTHORNE OG SOPHIA ... 47 væri hún mótfallin hjónabandi hans og Soffíu. Nathaníel hafði aldrei á ævi sinni rætt persónuleg vandamál sín við móður sína og hafði þvi enga aðstöðu til þess að vita, að þetta var hreinn tilbúning- ur systur hans. Soffíu fannst þessi röksemda- færsla ósköp eðlileg. Þegar hún stóð þannig andspænis ákvörðun, þar sem um hennar eigin hamingju var að tefla, lagði hún úrslitin al- gerlega á guðs vald. „Sé það áform guðs að við gift- umst, mun hann sjá um, að ég verði heil heilsu. Ef mér batnar ekki, er það merki þess, að það sé okkur ekki fyrir beztu.“ Natlianíel var aldrei í neinum vafa um, að ást þeirra mundi valda því kraftaverki. „Ó, hjartans ástin min,“ skrifaði hann henni frá skrif- stofu sinni á kolabryggjunni í Bost- on, „við skulum gera ást okkar svo sterka, að þú verðir svo hjartaglöð, að þú getir með engu móti verið líkamlega vanheil. Taktu hlutdeild í heilsu minni og kröftum, elskan mín. Er allt, sem ég á, ekki alveg jafnt þin eign og mín?“ Hægt og hægt, svo að þess varð naumast vart náði Soffia fullri heilsu á þeim þremur árum, sem leynileg trúlofun þeirra stóð. Þegar bati hennar var augljós orðinn, fór hún í heimsókn til systra Nath- aníels, og með óendanlegri hátt- vísi og góðvild opnaði hún þeim leið til þess að skipta um skoðun. Lauk þeirn viðræðum svo, að þær tóku sameiginlega þátt i að gleðj- ast yfir vali bróður síns. Þegar Nathaniel sagði móður sinni frá fyrirætlunum sínum, mælti hún ró- lega: „Þetta hef ég vitað árum sam- an. Og Soffía Peabody er sú eigin- kona, sem ég helzt hefði kosið þér til handa, öllum öðrum fremur.“ Fimm árum eftir að þau hittust fyrst, voru þau gift. Nathaniel flutti brúði sina i húsið, sem hann hafði tekið á leigu í Concord, hið sögu- lega „Old Manse“ (gamla prest- setur), sem stóð spölkorn frá veg- inum yfir hið bugðótta Goncord- fljót. Á þessum fyrstu hamingjuriku árum „virtist allt, sem nauðsyn- legt er til að lifa og gleðjast, koma af sjálfu sér eins og dögg af himni.“ Nathaniel þurfti ekki að eyða meiru en fjórum til fimm klukkustundum á dag til ritstarfa sinna. Við og við komu gestir — Emerson, Al- cott, Channing, Thoreau; en Nath- aniel og Soffía endurguldu aldrei heimsóknir þeirra. Þau máttu aldrei eyða tíma frá sínum hamingjuríku samverustundum. A vetrum fóru þau í skautaferðir á ánni eða gönguferðir um skógana. í hlýju veðri fiskuðu þau eða syntu i ónni og könnuðu órbabakkana á bát. Landið og skógarnir um- hverfis gamla húsið urðu vitni að ást þeirra, og uppáhalds göngu- ferð þeirra var til „Sleepy Hollow“ (Svefndældarinnar), þar sem Nath- aniel sagði Soffíu, að hann ætlaði einhvern tíma að reisa „pleasure dome“ (gleðihvelfingu) í grösugri brekkunni. „Seinni hluía sunnudagsins," rit- aði Soffía einn vordag, fyrsta dag- inn þeirra i „Old Manse,“ „ærsluð- ust fuglarnir svo elskulega og þeytt-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.