Úrval - 01.12.1968, Blaðsíða 11

Úrval - 01.12.1968, Blaðsíða 11
ÍSLENZK IiEIMSÞEKKING Á FYRRI ÖLDUM 9 víðara yfirliti um heiminn, sem hér var að vakna á uppvaxtarárum hans, enda voru þá siglingar um Norður- Atlantshaf sífellt að aukast með til- komu hinnar grænlenzku nýlendu. Þegar menn hrakti frá einni strönd Atlantshafs til annarrar, töluðu þeir um að skipið „reiddi um haf inn- an“, eins og stendur í sögu Þorfinns karlsefnis, og bar þetta vott um glöggt yfirlit um landaskipun á þessu svæði. Þess er að vísu að gæta, að atburður sá sem þarna ræðir um gerðist um tíu hundruð, en sagan er talin rituð á þrettándu öld, en þetta breytir litlu eða engu, því að senni- legast er að orðatiltækið, að sigla um haf innan, sé komið frá þeim sem sjálfir fóru slíkar ferðir. Kn hvort það hefur verið algengt að menn hrekti þannig frá einni haf- strönd til annarrar, um þá óravegu sem þar eru, veit ég ekki. Hitt er ljóst, að þar sem ríki hins norræna þjóðstofns stóð svo víða sem raun var á: frá Grænlandi til Noregs, frá íslandi til írskra byggða og vest- rænna og til Færeyja, en siglingar og samgöngur tíðar milli allra þess- ara landa, þá hefur þar orðið víð- særra og rýmra um allan heims- skilning en síðar gat orðið, þegar þessar byggðir fóru að einangrast og týna tölunni. Var það ekki nema eftir því sem við mátti búast, að fram kæmu menn meðal þessa fólks, sem leit- uðu slíks skilnings og bæru hann fram, horfðu til stjarnanna öðrum mönnum fremur, yrðu heimsfræð- ingar eftir því sem þá stóðu efni til. Og ætla ég þá fyrstan að nefna mann, sem kunnur er fyrir annað meir en það, sem hér skal rætt um. Sá sem ég hef í huga, er Einarr Eyjólfsson Þveræingur, bóndi og goðorðsmaður í Eyjafirði um og eftir 1000, og kunnur af mörgum sögum. En þessi bóndi er raunar á- minning um það, hve merkileg er saga þess bændaþjóðfélags, sem staðið hefur á norðurslóðum und- anfarin 1200 ár, og á sér fyrir arf- taka hina íslenzku bændur, meðan þeir eru sér meðvitandi um þann uppruna sinn. Það er meðal annars til marks um ágæti Einars Þveræings, að Halldór Snorrason skyldi vera dótt- ursonur hans, en Halldór var eins og kunnugt er, einn af frömuðum íslenzkrar sagnlistar og sagnfræði. Hin ísl. sagnfræði var vísindaleg: var það höfuðreglan að segja satt, og þessvegna gátu söguefnin geymzt öld eftir öld á þann hátt sem varð. Og það er af þeirri ástæðu, sem geymzt gat sú vitneskja um vísindi eða vísindaviðleitni hjá Einari Þveræingi, sem Ljósvetningasaga segir frá þessum orðum: „Einarr skipaði sauðamanni sínum, að hann skyldi snimma upp rísa hvern morgin ok fylgja meðan hæst var sumar. Ok þegar út hallaði sumar skyldi hann halda til stjörnu ok vera úti með sólsetrum ok skynja alla hluti þá er honum bar fyrir augu ok eyru, ok segja sér öll ný- mæli, stór ok smá. Einarr var sjálfr árvakr ok ósvefnugr. Gekk hann oft út um nætur at sjá himintungl. Kunni hann alls þess góð skil“. „Kunni hann alls þess góð skil“. Það væri ekki lítils um vert að vita hvað búið hefur að baki þeim orð-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.