Úrval - 01.12.1968, Blaðsíða 24

Úrval - 01.12.1968, Blaðsíða 24
22 ÚRVAL göfugmennsku til þess að bjarga henni frá þjóðfélagslegri útskúfun, sem hafði orðið hlutsklpti hennar fyrir að aðhyllast hugmyndir hans um trúleysi og uppreisn? Og hafði hann ekki stöðugt brýnt þetta fyrir henni: „Samband kynjanna er að- eins heilagt, meðan það eykur ham- ingju eiginmanns og eiginkonu, og leysist sjálfkrafa upp frá því augna- bliki er ókostir þess verða þyngri á metunum en kostirnir. Stöðug- leikinn hefur ekki fólgna neina dyggð í sjálfum sér, heldur er hann oft þrunginn grimmd og fær mann til þess að afsaka og umbera hina alvarlegustu galla og ókosti í fari þess, sem maður hefur valið fyrir maka......“ Vissulega hlaut hún því að skilja, að það var óhjákvæmi- legt, að þau yrðu ekki lengur eig- inmaður og eiginkona .... Hann skoðaði magnvana vilja- leysi hennar sem samþykki. Og nokkrum klukkutímum eftir þetta erfiða samtal þeirra skrifaði hann henni á þessa leið: „Ég endurtek (og þú mátt trúa mér, að ég er ein- lægur), að mér þykir enn vænt um þig sem fyrr. Ég álít, að tilfinning- ar mínar séu nú jafnvel dýpri og varanlegri í eðli sínu en fyrr, að þær séu ekki eins háðar breyting- um af völdum ímyndana og duttl- unga. Tengsl okkar voru ekki tengsl ástriðna. Það var vináttan, sem var grundvöllur tengsla okkar, og á þeim grundvelli hafa þau vaxið og styrkzt. Það er ekki hægt að álasa mér fyrir það, að þú hefur aldrei fyllt hjarta mitt fullnægjandi ástríðu. Ef til vill þekkir þú sjálf ekki til slíkra kennda, sem eitt sinn kunnu að verða vaktar hjá þér af einhverjum, sem er göfugri og mak- legri en ég. Og megi þú finna ást- mög, sem sé eins ástríðufullur og ég mun verða þér innilegur og ein- lægur vinur.“ Harriet gekk nú með öðru barni hans, og hún tók þetta svo nærri sér, að hún lá veik í næstu tvær vikur. En hinn ungi Shelley lét sér hvergi bregða, heldur hélt á fund William Godwins. Hann vissi, að Godwin var ákafur frjálshyggju- maður, sem hafði á yngri árum stutt helgi hinnar sönnu ástar af miklum móði og hagað lífi sínu einnig í samræmi við þær kenn- ingar sínar. Hann hafði gefið God- win fjárupphæðir, sem voru hon- um ofviða, og hafði hann gert það til þess að hjálpa honum að losna við einhverja af hinum fjölmörgu lánardrottnum, sem eltu hann á röndum. En allt kom fyrir ekki. Shelley minntist einnig þessarar staðreyndar, er hann lýsti fyrir honum hinni eldheitu ást sinni til Mary og hinni gagnkvæmu ást hennar. En hafi hann búizt við að f'nna samúð og skilning, þá hefur hann bæði orðið undrandi og hrygg- ur. Godwin álasaði honum og áleit fyrirætlun hans vera algert brjál- æði og bannaði honum að stíga fæti sínum inn fyrir dyr litlu bókabúð- arinnar í Skinnerstræti. Vegna sameiginlegra bæna God- winhjónanna og Harriet samþykkti Mary loksins að hitta Shelley ekki framar. Og þau vonuðust til þess, að ef til vill mundi ástarbrími hans
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.