Úrval - 01.12.1968, Blaðsíða 117

Úrval - 01.12.1968, Blaðsíða 117
TIL SÍÐASTA HJARTSLÁTTAR 115 kom einmitt þegar verið var að leggja mig á hjólaborð til þess að flytja mig á því fram í skurðstofuna. Við kvöddumst án þess að láta til- finningarnar ná yfirhöndinni yfir okkur. En seinna komst ég að því, að hún hafði gefið tilfinningunum lausan tauminn og farið að gráta beisklega, þegar mér var ekið burt. Clive Haupt hafði þegar verið lagður á skurðborðið. Hann var al- veg að dauða kominn. Öndun hans viðhaldið með hjálp gerviöndunar- tækis. Nú hófst fyrsti undirbúning- ur að sjálfri aðgerðinni, þegar svæf- ingarlæknirinn sprautaði litlum skammti af atropine í æðar mér. Þetta efni þurrkar upp vökva í munni, hálsi og lungum og tryggir, að öndunarfærin verði laus við kirtlavökva og hráka. Síðan var mér gefið inn pentothal, og svæf- ingin hreif næstum tafarlaust. Gúmslöngu var stungið upp í aðra nös mína og alla leið niður í barka. Þessi slanga var tengd við svæf- ingarvélina með sínum sívalningum, sem hafa að geyma halothane og „nitrous oxide“, sem kallað hefur verið „hláturgas“ og er oft notað sem deyfingarmeðal af tannlæknum. Áhrif pentothalsins hverfa fljótt, og svæfingunni er viðhaldið með þessum tveim loftkenndu efnum. Clive Haupt var þegar látinn, er skurðlæknarnir hófu hina raunveru- legu aðgerð. Hjartslætti hans hafði eingöngu verið haldið við með hjálp öndunarvélar. Læknarnir vissu, að hjartaflutninginn yrði að. fram- kvæma með sem allar minnstri töf, þegar hjartað hætti loksins að slá. Að öðrum kosti mundu hjartavef- irnir fljótlega rýrna og ganga úr sér. Það varð því að undirbúa lík- ama minn sem allra mest undir það augnablik, er hinn raunverulegl hjartaflutningur skyldi hefjast. Þá varð ég að vera tilbúinn að taka á móti nýja hjartanu. Prófessor Barnard tók skurðhnif- inn í hanzkaklædda hönd sína og skar langan skurð. Hann byrjaði skurðinn 1—2 þumlungum fyrir neðan barkakýlið og skar alla leið niður undir nafla. Skurðbrúnirnar voru síðan vel aðskildar, vefjunum undir húðinni var ýtt varlega til hliðar, og þá kom bringubeinið í ljós. Prófessor Barnard sagaði nú í gegnum bringubeinið endilangt, ofan frá og niður úr, með sérstaklega gerðri sög, og síðan togaði hann til hliðar báða helminga brjóstholsins með sérstöku verkfæri, sem til þess er gert. Nú kom hjartað í ljós, þar sem það sló innan undir himnupoka sínum, gollurshúsinu. Næst opnaði prófessor Barnard gollurshúsið, og þá loks sást hjartað nakið með hólfum sínum og risa- vöxnu slagæðum og bláæðum. Önd- un minni var nú haldið við með lofttegundum úr svæfingartækjun- um, og voru þær leiddar í gegnum slöngu, sem stungið var í barka mér. Nú gat prófessoir Barnard framkvæmt vandlega lokaskoðun á hjartanu. Og skoðun sú staðfesti það, sem hann vissi þegar. Ásig- komulag þess var svo vesælt, að hjartaígræðsla ein gat bjargað lífi mínu. Hjartað er dæla, sem skipt er í vinstri og hægri hluta með skil-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.