Úrval - 01.12.1968, Blaðsíða 92

Úrval - 01.12.1968, Blaðsíða 92
90 Krímstríðið, er þá geisaði. Hann dó úr kóleru skömmu síðar og List- er var veitt staða hans. Hann einbeitti sér nú fyrir al- vöru að starfi sínu, en gaf sér þó tíma til að gifta sig vorið 1856. Kona hans var Agnes Symes, og þar sem hún var ekki kvekari, varð hann að yfirgefa trúflokk sinn. Þau eyddu hveitibrauðsdögunum í að heimsækja fjölmörg sjúkrahús á meginlandinu og komu meðal ann- ars til Frakklands, Þýzkalands, Austurríkis og Ítalíu. Auk embættisstarfanna hélt List- er áfram rannsóknum sínum og sneri sér nú að storknun blóðsins, en verkefnið, reyndist svo flókið að hann sá fram á, að hann mundi ekki komast að neinni niðurstðu. Þrem árum etfir giftinguna var hamingjan honum enn hliðholl. Honum var boðið að gerast pró- fessor í skurðlækningum í Glasgow. Hann var í nokkrum vafa um hvort han ætti að taka boðinu og leitaði því ráða hjá föður sínum eins og hann var vanur. Faðir hans gaf honum það ráð, að hann skyldi taka við starfinu, ef hann treysti sér til að gegna því sómasamlega. Þannig atvikaðist það, að Lister fluttist til Glasgow árið 1860, og það var þar, á hans eigin sjúkra- húsi, að hann fór að velta fyrir sér vandamálinu með ígerðir og blóð- eitrun eftir skurðaðgerðir og ákvað að gera eitthvað til að vinna gegn því böli. f fyrstu var Lister á sömu skoð- un og aðrir skurðlæknar, að blóð- eitrunin stafaði af menguðu lofti í sjúkrastofunum og sóttkveikjurnar ÚRVAL bærust þannig frá einum sjúklingi til annars. Fyrsta ráðstöfun hans var þess vegna í því fólgin, að hafa bil milli rúmanna. Þegar þetta dugði ekki, vissi hann að orsökin hlaut að vera önnur. Hann hélt áfram að gera tilraunir, en það var ekki fyrr en einn starfsbróðir hans minntist af tilviljun á kenningu Pasteurs um gerjun og rotnun, að hann fór að kynna sér þessi fræði nánar, og fór að gera sér vonir um að leysa ráðgátuna. Lister byrjaði á því að endur- taka tilraunir Pasteurs, til þess að öðlast hagnýta reynslu. Þegar þess- ar tilraunir sönnuðu, að örsmáir rotnunargerlar berast með loftinu, datt Lister í hug, að sama máli gegndi um ígerðarsýkla. Hann af- réð því að gera tilraun með eina skurðaðgerð. Hann ákvað að velja sérstak sártegund og gera allar hugsanlegar ráðstafanir til þess að fyrirbyggja, að ryk og sýklar úr loftinu kæmust í það. Sárið, sem han valdi var opið beinbrot. Spurn- ingin var, hvernig gat hann varið það fyrir ryki og sýklum? Pasteur hafði sýnt fram á, að gerlum mátti eyða með þrennu móti: Með síun, hita og sóttvarnar- efnum. Lister var ljóst, að einung- is þriðja aðferðin gat komið til greina í þessu tilfelli. Þegar hann gerði aðgerðina, hreinsaði hann því hörundið kring- um sárið með karbolsýru og að lokum sótthreinsaði hann sárið sjálft með sama efni. Enda þótt þetta kæmi í veg fyrir blóðeitrun- ina, þoldi húðin illa hið sterka eit- ur, og Lister lagði því kapp á að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.