Úrval - 01.12.1968, Síða 23

Úrval - 01.12.1968, Síða 23
SHELLEY OG MARY GODWIN 21 yf:r allt, hreinn logi innblásturs, er tærði sál hans? Gæti hún skilið slíkt? Eða mundi hún kannski mis- skilja orð hans og láta þannig loga ástar hans dofna og kulna að síð- ustu út í ösku biturleikans? Nei, hann þorði ekki að mæla þessi orð. „Shelley . .. Hann leit á hana, og fingur þeirra snertust í þögninni, er umvafði þau. „Mary....“ Og þá vissi hann það skyndilega á orðvana augnabliki innblástursins, og hjarta hans æpti af una'ði. Og þarna sóru þau hvort öðru ei- lífa ást og tryggð við gröf móður hennar. Það var orðið síðla kvölds, er þau yfirgáfu kirkjugarðinn og héldu heim. Mary hélt heim til litla húss- ins og bókabúðarinnar í Skinner- stræti, heim til hinnar hvassyrtu stjúpmóður sinnar og rólynda, þol- inmóða föður, Williams Godwins, höfundar bókarinnar „Stjórnmála- legt réttlæti“, sem hafði eitt sinn gert nafn hans frægt meðal mennta- manna um víða veröld. Og Shelley sneri aftur til leiguherbergis síns í Flotastræti, þar sem hann dvaldi í þessari heimsókn sinni til Lundúna. Síðar skrifaði hann Thomas Hogg, vini sínum, á þessa leið um sam- band þeirra Mary Godwins: „Ég leyndi sjálfan mig hinu sanna eðli tilfinninga minna. Ég reyndi einnig að dylja þær fyrir Mary, en það var árangurslaust. Ég var óviss og reikull. Mig hryllti við að bregð- ast skyldum mínum, og á þessu augnahliki gat ég ekki skynjað mörk þau, sem skilja að dyggðina og brjálæðið, par sem sjálfshollust- an verður að algerum fávitahætti. Ég skynjaði skilning hennar þeim anda, sem greinir hinn sanna kjarna hlutanna, og þeirri ástúð, sem er heilög og hrein og laus við spillandi saurgun ruddalegrar hjátrúar og hindurvitna. Því fá engin orð lýst, hvernig henni tókst að eyða ímynd- unum mínum. Fyrir dauðlegu í- myndunarafli er ekki hægt að lýsa því göfuga og unaðsþrungna augna- bliki, þegar hún játaði, að hún væri mín, játaði það fyrir mér, sem hafði verið hennar svo lengi í leynd- um ....“ Næstu dagana nærðu þau ást sína á samveru sinni án þess að skýra umheiminum fró henni. Síð- an tók Shelley penna sér í hönd og skrifaði Harriet konu sinni bréf. Hann bað hana um að koma til Lundúna, því að hann hefði mjög þýðingarmiklar fréttir að færa henni. Þegar þau hittust, skýrði hann henni frá því af eins mikilli nær- færni og honum var unnt, að hann væri altekinn ást til Mary. Hann stakk upp á því, að þau gætu kannske búið saman, öll þrjú, hún sem systir hans og Mary sem eigin- kona hans. Hann vænti þess, að hún skildi, hvað gerzt hafði, því að hafði hann ekki sjálfur mótað hugsanir hennar og hugsunarhátt í þrjú löng ár, allt frá þvi að hún var fimmtán ára og hann átján? Hafði hann ekki einnig gert það, jafnvel áður en hann giftist henni, þessari veitinga- mannsdóttur, sem var töfrandi og leiðitöm, en þó varla í meðallagi greind? Og hafði hann ekki gifzt henni vegna augnablikskenndar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.