Úrval - 01.12.1968, Blaðsíða 74
fíandhi var lítill maður vexti og veikbyggður, en honum tókst
með stöðugum líkamsæfingum og ströngum reglum í mataræði
að ná óvenjulegri líkamshreysti. Enda þótt liann væri svo
feiminn á unga aldri að hann gat. ekki haldið rœðu opinber-
lega var persónuleiki lians svo áhrifamikill að hann gat
talið hundruð þúsunda samlanda sinna á að hœtta lífi
sínu og eignum fyrir málstað lians og þola fangelsi og
fátœkt til stuðnings honum og hugmyndum hans.
Mohandas Gandhi
Eftir ANDREW EWART
Mohandas Gandhi, sem
PlflHlVír j oft' var kallaður „Ma-
hatma“ eða „mikla sál“,
var eini stjórnmálaleið-
wfcíiWtíMJí togi síðari tíma sem
kom af stað byltingu án valdbeit-
ingar og má raunar telja hann
frumkvöðul þeirrar öldu friðsam-
legra mótmæla, sem nú fer um
heiminn og er svo mjög í tízku.
Gandhi var lítill maður vexti og
veikbyggður, en honum tókst með
stöðugum líkamsæfingum og ströng-
um reglum í mataræði að ná óvenju-
legri líkamshreysti. Enda þótt hann
væri svo feiminn á unga aldri að
hann gat ekki haldið ræðu opin-
berlega, var persónuleiki hans svo
áhrifamikill, að hann gat talið
hundruð þúsunda samlanda sinna
á að hætta lífi sínu og eignum fyr-
ir málstað hans og þola fangelsi og
fátækt til stuðnings honum og hug-
sjónum hans.
Hann var fæddur í Porbandar á
suðvesturströnd Indlands 2. október
1869, yngsti sonur Kaba Gandhi,
ráðherra í Rajkot og fjórðu konu
hans. Hann kvæntist þrettán ára að
aldri stúlku að nafni Kasturbai og
átti með henni fjóra syni.
Arið 1887, þegar hann var átján
ára gamall, var hann sendur til
London til þess að lesa lög, en áður
en hann lagði af stað, varð hann
að gefa móður sinni hátíðlegt lof-
orð um að lifa eingöngu á grænmeti.
Á leiðinni til Englands og á fyrsta
72
Great Lives