Úrval - 01.12.1968, Síða 93
JOSEP LISTER
91
finna annað sóttvarnarefni, sem
væri ekki skaðlegt hörundinu, en
dræpi þó sýklana.
Þessar tilraunir Listers gengu
hægt ,en hann gafst þó ekki upp
og árið 1867 lýsti hann þeim í
brezka læknatímaritinu The Lancet.
Greinar hans vöktu mikla athygli,
en hann eignaðist jafnframt marga
andstæðinga. Hann varð fyrir
hörðum árásum, einkanlega af hálfu
James Simpsons, þess er uppgötvaði
klóroformið.
Lister snerist til varnar og hélt
áfram að endurbæta sótthreinsun-
araðferðir sínar við uppskurði. Það
tók langan tíma að fá lækna til að
fallast á kenningar hans, en smám
saman létu andstæðingarnir undan
síga. Sigurinn vannst árið 1879,
þegar flest sjúkrahúsin í London,
sem nú voru komin undir stjórn
yngri og frjálslyndari manna, tóku
upp sóttvarnaraðferðir hans.
Ástandið í sjúkrahúsunum breytt-
ist á augabragði. Maðurinn, sem til
þessa hafði verið talinn sérvitring-
ur, var hlaðinn lofi. Háskólarnir
heiðruðu hann og hann var sæmdur
fjölda heiðursmerkja.
Árið 1893 lézt konan hans, þeg-
ar þau voru í fyrsta sumarleyfinu,
sem þau höfðu tekið í mörg ár.
Hjónabandið hafði verið mjög far-
sælt og konumissirinn hafði því
mikil áhrif á hann, og hann varð
aldrei samur maður síðan. Lister
var gerður að heiðursborgara
Lundúnaborgar á áttræðisafmæli
sínu.
Hann lézt 12. febrúar 1912, átta-
tíu og fimm ára gamall.
FANGAR BÚA TIL STÍGVÉL HANDA LÖGREGLUHUNDUM
Fangar í fangelsi í Auckland á Nýja Sjálandi héldu, að það væri
verið að leika heldur betur á þá um daginn. Þeim var sagt, að þeir
skyldu hætta við póstpokasaumaskapinn, sem þeir höfðu fengizt við,
og byrja að sauma stigvél .... handa hundum.
En það var alls ekki verið að ieika á þá. Það var þörf fyrir stig-
vélin sem sérstakan útbúnað fyrir 9 þrautþjálfaða hunda i lögreglu-
hundaliði Aucklandlögreglunnar.
T. A. Beatson, lögregluþjónn, sem stjórnar þessu sérstaka liði, hafði
áhyggjur af því, að hundarnir voru alltaf að skera sig í loppurnar á
brotnu glerrusli, einkum þegar þeir voru að ieita í ruslahaugum og
á ýmsum geymslustöðum bak við gamlar byggingar.
Til þess að ráða bót á þessum vanda bjó hann til eitt par af sterk-
um hundastígvélum úr segldúk, sem líkjast dálítið reimuðum smá-
barnaskóm. Og svo lét hann fangana búa til svona stígvél handa
öilum hundunum. St.ígvélin voru fest með reimum nokkru fyrir ofan
loppurnar. Og hundarnir vöndust stígvélunum mjög fljótlega.
Og nú er lögregluhundaliði Aucklandborgar ekkert að vanbúnaði,
heldur getur það geystst fram á orrustuvöllinn ,hvernig sem hann er
útlits.