Ársrit um starfsendurhæfingu - 2024, Síða 5

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2024, Síða 5
 VIRK LILJA K. SÆMUNDSDÓTTIR formaður stjórnar VIRK 2023-2024 verkefni í fangið sem við ráðum misvel við og engin ein uppskrift eða lausn er til sem hentar fyrir alla og þarfir ekki þær sömu. Hver og einn er einstakur og þarf að finna sínar leiðir. Stál brýnir stál, maður brýnir mann Vinnuumhverfið heldur áfram að breytast með tækniframförum, hnattvæðingu og breyttum áherslum. Ungt fólk sem kemur á vinnumarkaðinn stendur frammi fyrir bæði áskorunum og tækifærum. Ein af helstu áskorunum sem ungt fólk lendir í á vinnustaðnum er umskiptin frá skóla í vinnuumhverfi. Þessi breyting krefst aðlögunar að nýrri vinnumenningu, væntingum og ábyrgð. Auk þess að standa frammi fyrir hindrunum sem tengjast skorti á reynslu, takmörkuðu tengslaneti og þörfinni á að sanna sig í samkeppni við aðra. Það eru líka tækifæri fyrir vinnu- markaðinn að fá ungt fólk með fersk sjónarmið, nýstárlegar hugmyndir og sterka tæknikunnáttu. Þau búa oft yfir mikilli aðlögunarhæfni, sköpunargáfu og eldmóði sem er mikilvægt fyrir vinnustaðinn. Vinnuveitendur geta virkjað þessa eigin- leika með því að veita leiðsögn, þjálfun og tækifæri til vaxtar til að hjálpa ungu fólki að dafna í hlutverkum sínum. Ennfremur gegnir vinnustaðurinn mikilvægu hlut- verki í mótun starfsþróunar og starfsferils ungra einstaklinga. Fyrirtæki sem eru með góðan starfs- anda, gott vinnuumhverfi, tækifæri til starfsþróunar, stuðla að jafnvægi á milli vinnu og einkalífs, hugsa um heilsu starfsfólks og setja fjölbreytileika í forgang eru líklegri til þess að laða til sín hæfileikaríkt ungt fólk. Segja má að aðlögun ungs fólks á vinnumarkaði sé margþætt og krefjist gagnkvæms skilnings, samvinnu og stuðnings bæði vinnuveitenda og starfsmanna. Finna einhvern stað Á síðasta ári var undirritaður samningur um samstarf við félags- og vinnumarkaðs- ráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið um gerð þríhliða samnings um samþætta heilbrigðis- og starfsendurhæfingar- þjónustu fyrir „NEET ungmenni“. Samningurinn tekur til þverfaglegrar og einstaklingsmiðaðrar heilbrigðisþjónustu og starfsendurhæfingar fyrir ungmenni 18 til 30 ára sem ekki eru í skóla og hafa verið óvirk á vinnumarkaði. Markhópur verkefnisins er NEET-ung- menni á aldrinum 18-30 ára sem eru í ríkri þörf fyrir samþætta heilbrigðis- og starfsendurhæfingarþjónustu og tilheyra eftirfarandi undirhópum NEET-skilgrein- ingarinnar: Ungmenni með þráláta kvíða- og/eða þráhyggju- og árátturöskun, fælniþunglyndi, persónuleika- og/eða til- finningavanda. Og ungmenni með röskun á einhverfurófi sem jafnframt eru með hamlandi geðræn vandamál. Tilgangur samningsins er að veita ung- mennum sérhæfða einstaklingsmiðaða þjónustu sem sniðin er að þörfum þeirra til að auka virkni þeirra, efla starfsgetu og félagsfærni. Sérstök áhersla er lögð á náið samstarf og samráð við bæði heil- brigðiskerfið og VIRK en það gefur mögu- leika á góðri faglegri heildrænni nálgun og samfellu í þjónustu og réttri þjónustu á réttum stað. Með samningi þessum er lögð áhersla á samþættingu tveggja þátta í heildstæðu kerfi endurhæfingar hér á landi þ.e. heilbrigðisþjónustu og atvinnutengdar starfsendurhæfingar. Ég sem vildi finna, út úr öllu stund og stað Starfsfólkið okkar hjá VIRK stóð frammi fyrir ýmsum verkefnum sem þörf var á að bregðast við og finna lausnir á. Það hefur ætíð einkennt starfsemi VIRK að bregðast við og aðlaga starfsemina að innri sem og ytri breytingum, aðlagast og tileinka sér nýjar áherslur, stefnur og strauma í breyttum aðstæðum í samfélaginu hverju sinni. Það má segja að VIRK sé eins og seglskúta en að sigla slíku skipi útheimtir þekkingu á seglbúnaðnum og samstíga áhöfn þar sem fólk tekur að sér ákveðin hlutverk um borð. Það þarf skynsemi og útsjónarsemi til að taka ákvarðanir um hvað best er að gera hverju sinni og áhöfnin þarf að vera samstíga í aðgerðum ef vel á að takast að stýra seglskútunni. Kærar þakkir til starfsfólks VIRK fyrir vel unnin störf. Milda hjartað Eitthvað þarf að segja, Finnst ég þurfa að teygja mig, Finna einhvern stað, Milda hjartað. Kaldur inn að beini Ekkert til að tengja við. Þrái bara að Milda hjartað Milda hjartað. Stál brýnir stál, Maður brýnir mann. Öll mín ófriðarbál Slokknuðu við að Milda hjartað Milda hjartað Ég sem vildi finna Út úr öllu stund og stað. Staðnæmdist við það, Milda hjartað. Milda hjartað. Jónas Sigurðsson 5virk.is

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.