Ársrit um starfsendurhæfingu - 2024, Blaðsíða 60
SVANDÍS NÍNA JÓNSDÓTTIR verkefnastjóri hjá VIRK
LANGTÍMA VEIKINDI
OG LÍÐAN Á VINNUSTAÐ
Af þessum sökum hafa rannsóknir beint sjónum sínum í
auknum mæli að svokölluðum sálfélagslegum þáttum
í vinnuumhverfinu, þ.e. aðstæðna sem hafa sálræn og/
eða félagsleg áhrif á hegðun og líðan einstaklinga1.
Sem dæmi um sálfélagslega þætti sem hafa verið þungamiðja
í rannsóknum á viðfangsefninu má nefna álag í starfi, þ.á.m.
kröfur um afköst og ákvarðanatöku, sjálfræði starfsmanns
í starfi, sanngirni og réttlæti af hálfu yfirmanna, stuðning
yfirmanns og samstarfsfólks, gæði samskipta á vinnustaðnum,
starfshlutverk, hlutverkaágreining og áhrif vinnu á einkalíf2.
Á SÍÐUSTU MISSERUM
OG ÁRUM HEFUR MIKIL
UMRÆÐA ÁTT SÉR STAÐ
UM LÍÐAN FÓLKS Á
VINNUSTAÐ, ENDA EKKI
AÐ ÓSEKJU. VIÐ VERJUM
STÓRUM HLUTA VÖKUTÍMA
OKKAR Á VINNUSTÖÐUM,
SEM GETA VERIÐ AF
ÓLÍKU TAGI, EN EIGA
ÞÓ ÞAÐ SAMEIGINLEGT
AÐ SAMSKIPTI VIÐ
SAMSTARFSFÓLK OG/
EÐA VIÐSKIPTAVINI EIGA
MIKILVÆGAN ÞÁTT Í ÞVÍ AÐ
STARFSEMIN GANGI UPP.
Aðstæður í vinnuumhverfi
Þó rannsóknir sýni að slæmar vinnuaðstæður geti vissulega haft
neikvæð áhrif á andlega líðan fólks - og jafnvel leitt til veikinda
- þá er öllu erfiðara að draga upp skýra mynd af áhrifunum
sem vinnuaðstæðurnar geta valdið2. Ástæðan er sú að oft er um
flókið samspil margra þátta að ræða, þátta sem eiga sér stað bæði
innan vinnustaðar og utan. Annað, og ekki síður mikilvægt, er að
í sálfélagslegu tilliti eru bæði verndandi þættir og áhættuþættir til
staðar á vinnustöðum.
60 virk.is