Ársrit um starfsendurhæfingu - 2024, Blaðsíða 31

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2024, Blaðsíða 31
 VIÐTAL tók á. Ég var dálítinn tíma að ná því að bjarga mér sjálfur, geta klætt mig og komist í sturtu. Þessi veikindi tóku gríðarlega á andlega sem líkamlega og ekki síður á fjölskyldu mína sem á tímabili beið milli vonar og ótta um hvernig þetta færi. Ég á konu og fimm börn. Áhyggjurnar hjá mér komu ekki fyrr en eftir á. Ég gerði mér í fyrstu ekki almennilega grein fyrir hve veikindi mín voru mikil. Svo á ég eitt barnabarn sem fæddist í nóvember 2020 og annað á leiðinni. Ég fékk að vita þegar ég vaknaði upp á Landspítalanum að ég væri að verða afi, það lífgaði mikið upp á tilveruna á þessum erfiða tíma.“ Hvernig fór þetta með þig og atvinnu þína? „Ég var óvinnufær í tvö ár. Ég var að vinna hjá Örnu, mjólkurfélaginu, þegar ég veiktist og gat ekki snúið aftur til þeirra starfa. Ég þoli ekki kuldann sem nauðsynlegur er í því vinnuumhverfi. Í byrjun árs 2021 fór ég í endurhæfingu á Reykjalundi í sex vikur og eftir að ég kom heim sendi heimilislæknirinn minn beiðni fyrir mig til VIRK. Ég komst þar að um vorið 2021. Ég fór í viðtal við ráðgjafa VIRK á Vestfjörðum og þegar búið var að samþykkja umsókn mína fór ég í starfsendurhæfingu hjá VIRK. Það hófst með því að mæta í viðtal og þar var farið yfir það sem var í boði og hvað væri hægt að gera fyrir mig. Meiriháttar gott að komast að hjá VIRK Það var meiriháttar gott að komast inn í þjónustu hjá VIRK. Ég fór í göngutúra og sótti fyrirlestra og æfingar. Svo var ég líka á námskeiði í handmennt til þess að þjálfa fínhreyfingar handanna. Ég var rosalega máttfarinn og lítill bógur. Svo komst ég inn hjá sjúkraþjálfara líka, það hjálpaði mikið. Ég fékk einnig sálfræði- þjónustu í gegnum VIRK, fyrst á Reykjalundi, það var óskaplega gott og svo fékk ég tíma hjá sálfræðingi sem var að vinna á vegum VIRK á Ísafirði. Það hjálpaði mikið. Ég fékk alla þjónustu hér fyrir vestan og þurfti ekkert að sækja suður, það fannst mér afskaplega gott. Þá gat ég verið hjá fjölskyldunni. Mér þótti þó mjög gott að vera á Reykjalundi. Elstu strákarnir voru í skóla í Reykjavík og ég gat hitt þá um helgar. Það lyfti mér alveg helling upp.“ Setti frá upphafi stefnuna á vinnumarkaðinn Hvenær fórstu að hugsa til endurhæfingar hvað vinnu snerti? „Stefnan hjá mér var frá upphafi að komast inn á vinnumarkaðinn aftur og það lagði ég ríka áherslu á í samtali mínu við ráðgjafa VIRK. Ég var svo heppinn að mér bauðst starf í sundlauginni í Bolungarvík. Þar hóf ég störf 1. mars 2022, það vantaði þá einn mánuði upp á að ég hefði verið frá vinnu í tvö ár. Ég byrjaði í sjötíu prósent vinnu og hef verið í því starfshlutfalli síðan og ætla mér að vera það áfram. Þetta hentar mér ágætlega.“ Þú hefur sem sagt verið vel syndur? „Já, ég get synt, ég stóðst allavega sund- prófið fyrir ári síðan,“ segir Jóhann Áskell og hlær. Höfðu þessi miklu veikindi mikil áhrif á líf þitt? „Já, þau höfðu það. Ég hafði svo lítið þrek og þol eftir þau. Ég fór þá leið að ræða um veikindi mín og afleiðingar þeirra og það hjálpaði mér mikið andlega. Ég lokaðist ekkert inni með mín mál. Fjölskylda mín var vissulega undir miklu álagi á þessu tímabili vegna veikinda minna, sérstaklega reyndi þetta á konuna mína. Hún stóð sig frábærlega í þessu öllu saman. Hún hjálpaði mér dyggilega í gegnum þetta. Hún fékk líka kóvid og öll börnin okkar um svipað leyti og ég veiktist en þau urðu ekki fárveik eins og ég.“ Glímir enn við þreytu og þrekleysi Sástu eftir þínu fyrra starfi? „Já, þetta var ágætis vinna en ég er líka í mjög góðu starfi núna. Það þýðir ekkert annað en horfa fram á við þegar svona atburðir verða.“ Hvað viltu segja um þjónustu VIRK? „Það er ekki annað hægt en dásama það sem gert var fyrir mig þar. Það var allt gert fyrir mig sem mögulegt var. Bæði var haldið utan um starfsendurhæfinguna og alla pappírsvinnu sem henni fylgdi – hún var mikil. Ég fékk endurhæfingarlífeyri. Fyrst fékk ég framlög úr sjúkrasjóði verkalýðsfélagsins sem ég á aðild að. Þá var ég í Verk Vest, verkalýðsfélagi Vestfirðinga. Núna er ég í Verkalýðs- og sjómannafélagi Bolungarvíkur eftir að ég hóf störf í sundlauginni. Endur- hæfingarlífeyri hjá Tryggingastofnun ríkisins fékk ég fljótlega eftir að réttindum mínum í Verk Vest lauk. Peningaáhyggjur mínar voru því ekki miklar, þetta hafðist allt saman.“ Hvernig er staðan hjá þér núna? „Ég er enn að glíma við þreytu og þrekleysi og er óskaplega viðkvæmur fyrir öllum kvefpestum sérstaklega. Ég er til dæmis búinn að vera undanfarna tíu daga með slæmt kvef og er lengi að jafna mig. Ég fann greinilega hvað þrekið minnkar hjá mér við slík veikindi. Maður fer þá óneitanlega í „bakkgír“ um tíma. En það er ekki annað í boði en halda áfram. Veikindin höfðu þó ekki áhrif á búsetu fjölskyldunnar, við höfum búið í Bolungarvík síðan við fluttum vestur í ágúst 2013. Við eru bæði hjónin ættuð af Ströndum. Það er fínt að búa hér fyrir vestan, maður hefur allt til alls hér.“ Fékkstu eftirfylgni eftir að þú laukst formlegri þjónustu hjá VIRK? „Já, ráðgjafar VIRK fylgdust með mér í nokkra mánuði eftir að starfsendurhæfingu lauk, ég skrapp í kaffi til þeirra og ræddi málin, hvernig mér leið og hvernig gengi. Það var mér alltaf opið að kíkja inn í spjall.“ Reynsla mín af VIRK er frábær Hvaða úrræði reyndist þér best? „Þjónusta VIRK skipti mig höfuðmáli, að geta hitt fólk og fengið andlega og líkamlega aðstoð. Reykjalundur var einnig mjög mikilvægur, auk endurhæfingarinnar hitti maður þar fólk sem svipað var ástatt fyrir og gat þá rætt um sameiginlega glímu við afleiðingar af slæmum kovidveikindum. Bæði þar og hjá VIRK eignaðist maður góða vini sem ég hef samband við enn í dag. Úrræðin sem komu mér best voru göngu- ferðir úti og námskeiðin sem ég sótti á vegum VIRK. Einnig vinna sem ég stundaði sem úrræði hjá VIRK, til dæmis í gróðurhúsi. Sálfræðiþjónustan reyndist mér líka vel.“ Hvernig er svo sjálfsmyndin þín núna? „Ég er fimmtíu og níu ára núna en óneitan- lega gæti heilsan verið betri. Ég var ágætlega á mig kominn fyrir veikindin og það er satt að segja mesta furða hvað ég er. Ég er viðkvæmur og þreklítill en andlega heilsan er bara nokkuð góð. Reynsla mín af VIRK er frábær. Það var meiriháttar að komast þar inn. Hjá VIRK starfar fagfólk sem reyndist mér mjög vel.“ Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir Mynd: Ágúst Atlason 31virk.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.