Ársrit um starfsendurhæfingu - 2024, Blaðsíða 46
VIRK hefur verið drifkrafturinn í að kynna
IPS hugmyndafræðina/íhlutunina bæði
í gegnum vinnustofur og einnig með
fyrirlestrum fyrir starfsendurhæfingarstöðvar
á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni
sem og fyrir aðrar stofnanir eins og
félagsþjónustu Reykjavíkur og Fangelsis-
málastofnun, svo eitthvað sé nefnt. VIRK tók
einnig þátt í að þýða tryggðarskalann yfir á
íslensku og hefur tvisvar sinnum gert úttekt á
samstarfsverkefni VIRK og LSH.
Mikilvægi IPS í almennri starfs-
endurhæfingu
Helsti munurinn á IPS og almennri starfs-
endurhæfingu þegar horft er á tímabærni
til vinnu er sá að í starfsendurhæfingu
fara einstaklingar oft fyrst í gegnum
endurhæfinguna og stefna svo í starf
þegar líður að lokum hennar. Þessu er
öfugt farið í IPS hugmyndafræðinni þar
sem vinnan er talin mikilvægur liður
í öllu endurhæfingarferlinu. Þannig
þarf einstaklingur ekki að hafa lokið
endurhæfingu áður en hann fer að vinna
heldur er þetta unnið samhliða hvoru öðru.
Til viðbótar við samstarfið við aðrar stofnanir
þá hefur VIRK einnig verið að þróa sína eigin
IPS þjónustu innan starfsendurhæfingar.
Öllum einstaklingum sem koma í þjónustu
VIRK og þurfa aðstoð við atvinnuleit stendur
til boða atvinnulífstengill sem veitir ávallt
einstaklingsmiðaða þjónustu. Ef í ljós
kemur að þörf sé á sértækari stuðningi er
hægt að vísa máli í IPS atvinnutengingu en
meginskilyrðið er að einstaklingur staðfesti
að hann sé tilbúinn að reyna endurkomu til
vinnu.
Einn hópur hjá VIRK hefur þó sérstaklega
verið tengdur við IPS-atvinnulífstengla
en það eru einstaklingar sem tilheyra
svokölluðum UNG19 hópi7. Í þessum
hópi eru ungmenni á aldrinum 18-29 ára
sem eru með grunnskólapróf eða minni
menntun (hafa ekki lokið stúdentsprófi
eða sambærilegu); eru með litla vinnusögu
og/eða langan tíma frá vinnumarkaði
(a.m.k. 6 mánuði); og hafa lifað við
íþyngjandi félagslegar aðstæður, t.d. erfið
uppvaxtarsaga, lítill félagslegur stuðningur,
óörugg búseta, fjárhagsvandi og þess háttar.
Þegar farið var af stað með þennan
hóp var meðal annars horft til SEED
(Supported employment & preventing
early disability) rannsóknarinnar sem gerð
var í Noregi á sambærilegum hópi8. Þar
sýndu niðurstöður fram á góðan árangur
IPS þar sem merkjanlegur munur var á milli
samanburðarhópa. IPS atvinnutenging
var öflugra úrræði til þess að auka
atvinnuþátttöku hópsins. Þannig komust
fleiri einstaklingar í samkeppnishæf störf
á almennum vinnumarkaði samanborið
við hópinn sem fékk hefðbundna
starfsendurhæfingu. Við hjá VIRK höfum
einnig séð frábærar tölur í UNG19 hópnum
en markmið verkefnisins var að hækka
virknihlutfall (auka atvinnuþátttöku) ungs
fólks á aldrinum 18–29 ára7.
IPS leggur megináherslu á að koma
atvinnu- eða námstengingu af stað
snemma í starfsendurhæfingunni. Vinnan
er í raun úrræði í starfsendurhæfingunni
þar sem verið er að þjálfa færni í raun-
aðstæðum, úti á vinnumarkaðnum eða
í námi. Þannig er ekki endilega verið að
bíða eftir því að búið sé að endurhæfa
Upplýsingar um einstaklinga frá LSH Laugarási sem voru með IPS-atvinnulífstengil
frá VIRK og útskrifuðust úr þjónustu á árunum 2020–2023
Meðallengd í þjónustu atvinnulífstengils var 9 mánuðir
57 einstaklingar voru útskrifaðir frá atvinnulífstengli á árunum 2020–2023
43 útskrifaðir í vinnu, nám eða atvinnuleit – 75%
36 útskrifuðust í vinnu og/eða nám – 63%
7 útskrifuðust í virka atvinnuleit – 12%
14 útskrifuðust í enga virkni – 25%
10 þeirra höfðu verið í einhverju tímabundnu starfi á meðan á þjónustu
hjá atvinnulífstengli stóð
einstaklinginn þar til hann er tilbúinn til að
fara að vinna. Hér er áhugahvöt til vinnu og
náms lykilþáttur. Lögð er áhersla á að mæta
einstaklingnum þar sem hann er staddur og
hvetja hann áfram með því að einblína á
styrkleika.
Samhliða þessu tekur einstaklingurinn þátt
í starfsendurhæfingu með aðstoð ráðgjafa
VIRK sem vinnur að því að lágmarka áhrif
hindrana til vinnu/námsþátttöku með
aðstoð þverfaglegs klínísks teymis innan
VIRK. Þetta verklag hefur skilað mjög
góðum árangri og hafa margir ungir og
áhugasamir einstaklingar komist inn á
vinnumarkaðinn í gegnum þetta verkefni.
Á myndum 2 og 3 má sjá tölfræðilegar
upplýsingar um árangur þessa starfs bæði
hjá einstaklingum frá LSH Laugarási og
einnig UNG19 hópnum.
70%
60%
50%
40%
30%
20%
10%
0%
Staða einstaklinga frá LSH Laugarási við útskrift
frá IPS-atvinnulífstengli á árunum 2020-2023
Vinna/Nám Atvinnuleit Engin virkni
63%
12%
25%
Mynd 2
46 virk.is