Ársrit um starfsendurhæfingu - 2024, Blaðsíða 36
Þá mun VIRK veita starfsendurhæfingar-
stöðvum handleiðslu vegna innleiðingar á
hugmyndafræði IPS (Individual placement
and support), en um er að ræða gagnreynda
aðferðafræði sem hefur skilað góðum
árangri við að aðstoða einstaklinga sem
hafa þörf fyrir sértækan stuðning við að
komast í vinnu á almennum vinnumarkaði.
Hlutfallsleg skipting útgjalda á
árinu 2023 vegna aðkeyptrar
þjónustu
Mynd 2 sýnir hlutfallslega skiptingu út-
gjalda vegna aðkeyptrar þjónustu frá
samstarfsaðilum á árinu 2023. Hæstri
fjárhæð er varið til kaupa á sérhæfðum
starfsendurhæfingarúrræðum hjá starfs-
endurhæfingarstöðvum um land allt, um
49% útgjalda. 33% fjárhæðar er varið til
kaupa á sálfræðiþjónustu og úrræða á sviði
sjálfseflingar. Úrræði tengd hreyfingu og
sjúkraþjálfun nema samtals um 11%.
Mikilvægi góðra samskipta
Sérfræðingar og ráðgjafar VIRK eru í miklum
daglegum samskiptum við þjónustuaðila
um allt land og innan VIRK er sérstakt
úrræðasvið sem sér um að halda utan um öll
keypt úrræði auk þess að skipuleggja eftirlit
með þeim og stuðla að þróun og nýjungum í
takt við þarfir þjónustuþega á hverjum tíma.
VIRK kaupir einungis úrræði sem flokkast
geta sem hluti af formlegri starfsendur-
hæfingu og veitt eru af fagaðilum með
tilskilin réttindi enda er um viðkvæma þjón-
ustu að ræða. Allir þjónustuaðilar þurfa að
skrifa undir trúnaðaryfirlýsingu áður en
samstarf við VIRK getur hafist. Gerðir eru
samstarfs- og rammasamningar við stærstu
þjónustuaðila VIRK. Gerðar eru ákveðnar
hæfniskröfur til þjónustuaðila og þurfa þeir
að senda nauðsynleg fylgigögn í gegnum
upplýsingakerfið í upphafi samstarfs. Hægt
er að uppfæra fylgigögn eftir þörfum.
Samskipti við þjónustuaðila fara mikið
fram í gegnum upplýsingakerfi VIRK. Þar
óska þjónustuaðilar eftir því að selja VIRK
úrræði og senda nauðsynleg fylgigögn
Fjarúrræðum
fjölgaði talsvert á
Covid árunum og
er slík fjarþjónusta
komin til að vera í
úrræðaflóru VIRK.
tengd úrræðum til samþykktar. Allar pant-
anir eru síðan rafrænar í gegnum kerfið
og þar þurfa þjónustuaðilar að koma á
framfæri ýmsum upplýsingum til ráð-
gjafa, atvinnulífstengla og sérfræðinga
VIRK í starfsendurhæfingarferlinu. Sam-
þykkt reikninga frá þjónustuaðilum og
eftirlit með þeim á sér líka stað í gegnum
upplýsingakerfið.
Góð samskipti þjónustuaðila, einstaklinga,
ráðgjafa, atvinnulífstengla og sérfræðinga
VIRK gegna lykilhlutverki í árangursríkri
starfsendurhæfingu. Samvinna fagaðila
og endurgjöf frá þjónustuaðilum um fram-
gang meðferða, skil á greinargerðum, loka-
skýrslum og upplýsingum um ástundun í
úrræði stuðla að markvissri starfsendur-
hæfingarþjónustu sem tekur mið af færni
og hindrunum hvers og eins með það að
markmiði að stuðla að endurkomu ein-
staklinga á vinnumarkað.
Nýtt útlit á síðum þjónustuaðila
Á árinu 2024 munu „Mínar síður“ þjón-
ustuaðila í upplýsingakerfi VIRK fá nýtt
útlit. Markmiðið er að gera umhverfið not-
endavænna fyrir þjónustuaðila og verður
umhverfið endurskrifað í nýrri tækni sem á
að auka hraða og er skalanleg á mismunandi
skjáum/snjalltækjum.
36 virk.is