Ársrit um starfsendurhæfingu - 2024, Blaðsíða 62
hvatt viðkomandi til að láta í sér heyra þegar
hann/hún/hán var á annarri skoðun en
yfirmaðurinn, og hvort næsti yfirmaður hafi
hjálpað viðkomandi til að auka færni sína.
Á mynd 3 er að sjá svipaða niðurstöðu
og á mynd 2. Afstaða til hvetjandi
stjórnunarhátta á vinnustaðnum fyrir
veikindaleyfi virðist á engan hátt taka mið
af vinnumarkaðsstöðu eftir veikindaleyfið,
nema síður sé. Í raun er langveiki hópurinn
hlutfallslega líklegri en hinir hóparnir
til að hafa oft upplifað (37%) hvetjandi
stjórnunarhætti.
Stuðningur yfirmanns
(e. Support from superior)
Afstaða til stuðnings frá næsta yfirmanni
var metin með því að reikna meðaltal svara
við spurningum um hvort viðkomandi hafi
fengið stuðning og hjálp með verkefni frá
næsta yfirmanni ef á þurfti að halda, hvort
næsti yfirmaður hafi verið fús til að hlusta
á vandamál sem við var að glíma í vinnunni
og hvort næsti yfirmaður hafi metið það við
viðkomandi ef hann/hún/hán náði árangri í
starfi.
Líkt og mynd 4 sýnir er ekki að sjá ýkja
mikinn mun á afstöðu til yfirmanns eftir
stöðu á vinnumarkaði eftir veikindaleyfið.
Ef litið er til þeirra sem segja að þeir hafi
oft notið stuðnings yfirmanns í starfinu fyrir
veikindaleyfi má sjá að hlutfall langveikra
(51%) er hærra en hlutfall launþega (46%)
og þeirra sem eru í námi eða atvinnuleit
(42%).
Stuðningur samstarfsfólks
(e. Support from coworkers)
Kvarðinn, stuðningur samstarfsfólks, byggir
á tveimur spurningum: hvort viðkomandi
hafi fengið stuðning og hjálp með verkefni
frá vinnufélögum ef á þurfti að halda og
hvort vinnufélagarnir hafi verið fúsir til að
hlusta á vandamál sem við var að glíma í
vinnunni ef á þurfti að halda (sjá mynd 5).
Líkt og áður er lítill hlutfallsmunur á svörum
eftir stöðu á vinnumarkaði. Heilt yfir
upplifði yfir helmingur svarenda að þeir
hefðu oft notið stuðnings samstarfsfólks á
vinnustaðnum fyrir veikindaleyfi, um 58%
launþega og námsmanna eða atvinnu-
leitenda og 61% langveikra.
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
50%
40%
30%
20%
10%
0%
Hvetjandi stjórnun
18%
33%
49%49%
19%
32%
44%
19%
37%
Sjaldan Stundum Oft
60%
50%
40%
30%
20%
10%
0%
Stuðningur næsta yfirmanns
Sjaldan Stundum Oft
34%
25%
42%
34%
20%
46%
29%
20%
51%
70%
60%
50%
40%
30%
20%
10%
0%
Stuðningur samstarfsfólks
Sjaldan Stundum Oft
24%
18%
58%
25%
15%
61%
27%
15%
58%
Í námi eða atvinnuleit Langveikir Launþegi
Í námi eða atvinnuleit Langveikir Launþegi
Í námi eða atvinnuleit Langveikir Launþegi
62 virk.is